Leikari af nagdýrakyni Ugla Egilsdóttir skrifar 28. febrúar 2014 15:00 „Tobba er rosalega fjörug á sviðinu og hleypur út um allt í ferðabúrinu,“ segir Nína Rún Bergsdóttir. fréttablaðið/valli „
Aðalleikarinn í leikritinu er með dýraofnæmi,“ segir Nína Rún Bergsdóttir, sem segja má að sé yfirdýratemjari í leiksýningunni Furðulegt háttalag hunds um nótt. „Það er Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Þetta er samt alls ekkert bráðaofnæmi hjá honum og við sjáum til þess að hann fái ekki ofnæmiskast. En þetta er bagalegt, því að hann er mest með bæði rottuna og hundinn í leikritinu,“ segir Nína. „Rottan“ heitir Tobba og er reyndar ekki af rottukyni. „Tobba er af tegundinni degu, sem er nagdýrategund, líkist íkorna mikið, en sleppur fyrir rottu á Stóra sviðinu. Í fyrsta eða annað skiptið sem ég náði að halda á Tobbu, þegar ég var enn að hæna hana að mér, náði hún einhvern veginn að skríða upp á öxlina á mér og inn undir fötin mín. Ég var frekar lengi að ná henni innan úr fötunum mínum. Núna er Tobba rosalega gælin. Hún er mikið fyrir athyglina, vill láta halda á sér og klappa sér. Hún nartar aðeins í mann, en bítur alls ekki. Leikhúsgestir þurfa því ekkert að hræðast, jafnvel þótt hún sleppi. En það stendur nú ekkert til að hún sleppi,“ segir Nína. Í sýningunni leikur einnig sex vikna gamall labradorhvolpur. „Hvolpurinn er í mjög strangri leikþjálfun um þessar mundir, svo hann taki ekki upp á því að fara út í sal eða pissa á sviðið. Við þurfum síðan að skipta hvolpinum út eftir tvo mánuði, því þá er hann ekki lengur hvolpslegur,“ segir Nína.
Mest lesið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Fleiri fréttir Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Sjá meira