Segja útboð alltaf hafa staðið til Samúel Karl Ólason skrifar 22. október 2014 10:12 Vísir/Valli
SORPA bs. segir að alltaf hafi staðið til að bjóða út allar framkvæmdir við byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar fyrir höfuðborgarsvæðið. Stærstur hluti áætlaðs kostnaðar við gerð stöðvarinnar felst í jarðvinnu, byggingarvinnu og tækjakaupum auk eftirlits á vinnustað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SORPU. Hana sendi fyrirtækið frá sér vegna forsíðufréttar Fréttablaðsins þann 20. október. Þar er greint frá því að Íslenska gámafélagið ehf. og dótturfélag þess Metanorka ehf. hafi kært SORPU til kærunefndar útboðsmála vegna meintrar ólöglegra samningsgerðar. „Sá hluti sem ekki er boðin út fellst í tæknilegri ráðgjöf aðila sem hefur áratuga reynslu af rekstri sambærilegrar stöðvar sem og þjálfun starfsfólks við rekstur stöðvarinnar þegar hún verður risin.“ Þá segir í tilkynningunni að samkvæmt lögum um útboð sé heimilt að semja beint um allt að 20 prósentum af áætluðum heildarkostnaði án útboðs. „Verkstjórn og tæknileg ráðgjöf rúmast vel innan þess ramma, hins vegar er óeðlilegt að gefa upp nákvæmari tölur á þessu stigi enda væri þá útboð á framkvæmdaþáttum marklaust.“ Í tilkynningunni segir að endanleg ákvörðun um kaup á tækni frá Aikan hafi verið tekin á fundi SORPU þann 12. maí síðastliðinn. Ekki sé rétt að ákvörðun um kaup frá Aikan hafi verið tekin árið 2007. „Metanorka ehf. kynnti hugmyndir sýnar að lausn með bréfi sem lagt var fyrir stjórn SORPU þann 22. ágúst síðastliðinn. SORPA fékk óháðan aðila til að skoða þá lausn og kom þá í ljós að eingöngu var um forvinnsluaðferð að ræða og vantaði alla útfærslu á gasgerðinni auk þess sem allan kostnað við sjálfa gasgerðina vantaði.“ Sú aðferð sem Metanorka kynnti hefði krafist svokallaðrar votvinnslu, samkvæmt tilkynningunni. SORPA telur þá leið ekki skila sama árangri og sú tæknilausn sem fyrirtækið telur hagkvæmasta. „Á þessu stigi tryggir hins vegar lausn SORPU vinnslu á öllum lífrænum úrgangi frá heimilum, ekki bara eldhúsúrgangi.“
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira