Grúsk-áráttan lagði grunninn Freyr Bjarnason skrifar 17. apríl 2014 07:00 Ari Arnórsson þegar samningarnir voru undirritaðir í gær. Fréttablaðið/Vilhelm
Fyrirtækið Ísar hefur undirritað sölusamning á þremur sérhæfðum íslenskum torfærubílum, Ísar TorVeg, sem eru sérstaklega hannaðir fyrir íslenska ferðaþjónustu og björgunarsveitir. Kaupendur eru íslensku fyrirtækin Mountain Taxi, Fjallajeppar og Orca en samningurinn var undirritaður í gær þar sem Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra var viðstödd. Bílarnir eru hugarfóstur Ara Arnórssonar, sem hefur starfað lengi sem leiðsögumaður. „Þetta er líklega í fyrsta sinn sem svona samningur er gerður því þetta er íslensk hönnun og íslensk framleiðsla. Bílarnir eru ætlaðir til fjöldaframleiðslu, til að uppfylla þær þarfir sem eru fyrir hendi bæði í ferðaþjónustu og björgunarstarfi, fyrst hérlendis, og síðan um heim allan,“ segir Ari, sem kveðst engu að síður ekki ætla að leggja heiminn undir sig. „Nei, heimurinn er með mörgum herbergjum. Það eina sem við þurfum er pínu, pínu, pínulítið brot. Þá erum við í góðum málum.“ Hann segist hafa unnið að gerð bílanna í tuttugu ár og tími hafi verið kominn á samning sem þennan. Vinnan hafi verið gríðarleg. „Frá minni hendi vitanlega en líka mikil vinna frá þeim sem kunna það sem ég kann ekki.“ Það var meðfædd grúsk-árátta Ara lagði grunninn að TorVeg-bílunum. „Ég hef aldrei verið sáttur við neitt í kringum mig sem er tæknilegs eðlis, ég hef alltaf viljað reyna að bæta það. Sum faratæki sem við höfum í ferðaþjónustu í dag þola ekki vonda vegi. Þau geta farið illa með sína farþega og þurfa stundum að aka mjög hægt. Svo er það hávaðinn og þrýstingurinn, sem getur valdið óþægindum,“ segir Ari. „Ég fór að teikna og fá menn til að gera þetta með mér en þeir voru uppteknir við sitt. Á endanum þurfti ég annað hvort að steinhalda kjafti eða gera eitthvað í málunum. Ég gerði það 2006 þegar ég lét smíða frumgerð að frekar frumlegum hópbíl sem er búinn að reynast frábærlega í sjö ár.“ Hann segir nauðsynlegt að ná kostnaðinum niður við vandaða ferðaþjónustu. „Ísland hentar ekki undir massatúrisma heldur frekar undir gæðaþjónustu. Mitt framlag er að gera rekstraraðilum kleift að bjóða upp á góða, vandaða og eftirsótta þjónustu með minni umhverfisáhrifum og lægri tilkostnaði þannig að það gæti orðið meiri arður af starfseminni. Tilkostnaðurinn við þessa gömlu jeppa sem við erum að nota í dag er alltof hár, bæði í eldsneytis- og viðgerðarkostnaði,“ segir hann en Torveg-bílarnir ganga fyrir innlendu eldsneyti að hluta til. Frumgerð bílanna verður framleidd á þessu ári og þrír nýir bílar verða svo afhentir á því næsta. „Við framleiðum síðan upp í allar pantanir,“ segir Ari og vonast til að heildarsala hér á landi fari í þriggja stafa tölu eftir fimm til tíu ár. „Ef við kíkjum á björgunarsveitirnar þá eiga þær 170 jeppa. Þær hafa endurnýjað fimm frá hruni, ekki vegna peningaskorts, heldur vegna þess að þær finna ekki hentug tæki til að kaupa. Nú vonum við að þau séu komin.“
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira