Fyrri hálfleikur var sérstaklega bragðdaufur en KR-ingar réðu ferðinni. Baldur Sigurðsson fékk færi hálfleiksins þegar hann skallaði aukaspyrnu Óskars Arnar Haukssonar framhjá. Bæði lið áttu í vandræðum með að senda boltann á samherja en leitin að mótherja gekk oft á tíðum betur.
Fylkismenn fengu ekki færi í fyrri hálfleiknum en hefðu átt að komast yfir á 55. mínútu. Sadmir Zekovic slapp einn í gegn en breytti dauðafæri í þröngt færi með vondri snertingu. Stefán Logi Magnússon í marki KR varði frá framherjanum og reyndar allt sem á mark hans kom í kvöld.
Klúður Zekovic varð dýrkeypt því tveimur mínútum síðar voru heimamenn komnir yfir. Farid Zato skallaði aukaspyrnu Óskars Arnar í átt að marki þar sem Grétar Sigfinnur flikkaði boltanum í markið. Annað mark Grétars í jafnmörgum leikjum en eiginkona hans, Sonja, fagnaði afmæli sínu í dag. Góð tímasetning það.
Leikurinn galopnaðist eftir því sem á hann leið. KR-ingar fengu urmul færa en voru sjálfum sér verstir auk þess sem Bjarni Þórður Halldórsson, í marki Fylkis, sýndi á köflum frábær tilþrif. Gestirnir settu heimamenn undir pressu síðustu mínúturnar og fékk Andrés Már Jóhannesson dauðafæri en Stefán Logi varði frá honum af stuttu færi.
KR-ingar fögnuðu stigunum þremur vel í leikslok en þeir áttu þau án nokkurs vafa skilið. Haukur Heiðar Hauksson og Óskar Örn Hauksson stóðu upp úr hjá KR auk þess sem Stefán Logi bjargaði í tvígang meistaralega. Hjá gestunum var Bjarni Þórður í stuði í markinu en framlína þeirra appelsínugulu var sérstaklega slök.
KR er komið í fjórða sæti deildarinnar með 13 stig eftir sigurinn. Keflavík og Víkingur hafa jafnmörg stig eftir leiki kvöldsins. Keflavík er með betri markatölu en Víkingar lakari. Fylkismenn sitja í níunda sæti með sjö stig.
Rúnar Kristinsson: Þurfum að bæta okkar leik mikið

„Að einhverju leyti er það völlurinn og menn þurfa meiri tíma til að ná valdi á boltanum. Á meðan hefur andstæðingurinn meiri tíma til að koma í pressu,“ sagði Rúnar.
„Það eru samt fullmargar sendingar sem fara á rangt heimilisfang.“
KR-ingar óðu í færum í síðari hálfleiknum og hefðu getað skorað fimm mörk í síðari hálfleiknum.
„Við erum mjög ósáttir við að skora ekki fleiri mörk. Við þurfum að bæta okkar leik mikið, bæði hvernig við spilum og færanýtingin,“ sagði Rúnar. Íslandsmeistararnir eru í fjórða sæti með 13 stig eftir átta leiki.
„Við erum ekki á þeim stað sem við óskuðum okkur að vera. Deildin er bara sterk og öll lið að stela stigum. Mótið er galopið en við þurfum að bæta okkar leik til að vera í toppbaráttunni.“
Ásmundur: Átti von á erfiðri byrjun

Ásmundi fannst of margar sendingar sinna manna ekki rata á samherja. Stutt væri þó á milli hláturs og gráturs.
„Rétt áður en þeir skora fáum við dauðafæri. Þar hefði ég viljað klára leikinn og snúa þessu við. Fá 1-0 okkar megin,“ sagði Ásmundur sáttur við framlag sinna manna.
Andrés Már Jóhannesson byrjaði á varamannabekknum og kom ekki inn á fyrr en vel var liðið á síðari hálfleik.
„Hann er að komast í stand. Byrjaði í fyrsta sinn í síðasta leik og spilaði 60 mínútur. Það er stutt á milli leikja og ekki hægt að keyra of mikið á honum,“ sagði Ásmundur. Tveir erlendir leikmenn, Andrew Sousa og Ryan Maduro, voru á varamannabekk Fylkis. Yfirleitt eru leikmenn sem fengnir eru að utan hugsaðir sem lykilmenn í liðum sínum.
„Þeir eru svo sem ekki fengnir til að sitja á bekknum. Við viljum fá meira frá þeim,“ sagði Ásmundur og sagði þá hafa gæði til brunns að bera sem þurfi að nýtast Fylkisliðinu betur.
En hvernig er staða Fylkis miðað við væntingar þjálfarans fyrir mót?
„Miðað við væntingar mínar erum við kannski aðeins undir pari en samt ekki langt frá því. Ég átti von á þokkalega erfiðri byrjun þar sem við vorum að fá til okkar menn sem voru að koma úr meiðslum, ekki í leikæfingu. Menn koma seint til okkar, rétt fyrir mót eða jafnvel eftir að mótið er byrjað.“
Grétar Sigfinnur: Þetta var fyrir konuna

Svo skemmtilega vildi til að eiginkona Grétars átti afmæli í dag.
„Þetta var fyrir konuna. Hún er 35 ára. Maður verður að gleðja hana,“ sagði Grétar sem skoraði annan leikinn í röð. Grétar skoraði í 2-1 tapinu gegn Stjörnunni.
„Maður er byrjaður að skora með löppunum svolítið mikið núna. Það er gaman að því,“ sagði Grétar sem á sínum tíma spilaði sem framherji.
„Ég er náttúrulega framherji,“ sagði kappinn hress.