„Maður hefur komið víða við þó ungur sé“ Samúel Karl Ólason skrifar 3. apríl 2014 13:30 Sigurður sést hér með þeim verðlaunapeningum sem hann hefur unnið sér inn á innan við ári. Vísir/Vilhelm
Sigurður Haraldsson varð á dögunum þrefaldur heimsmeistari í frjálsum íþróttum á heimsmeistaramóti eldri íþróttamanna í Búdapest. Á 15 árum hefur Sigurður farið á yfir 20 alþjóðamót í frjálsum íþróttum. „Ég er búinn að vera ellefu sinnum Norðurlandameistari í ýmsum greinum og einu sinni Evrópumeistari í kringlukasti. Svo ég hef komið víða við þó ungur sé,“ segir Sigurður sem er 85 ára gamall. Á mótinu í Búdapest varð Sigurður heimsmeistari í lóðakasti þar sem hann kastaði 12,59 metra, sleggjukasti með 29,11 metra og í kringlukasti með 23,89 metra. Þá fékk hann silfur í spjótkasti með 23,35 metra og í kúluvarpi með 9,43 metra. Hann setti nýtt Íslandsmet í öllum greinunum. „Ég byrjaði minn íþróttaferil tólf ára hjá Leikni á Fáskrúðsfirði. Fyrir 73 árum síðan. Við vorum svo heppin unga kynslóðin þar, að þangað kom mjög góður æskulýðsfulltrúi og kennari sem að leiddi okkur í gegnum alls konar íþróttir og byggði upp allt íþróttastarf þarna. Síðan þá hefur verið viðloðandi mjög mikil íþróttahreyfing á þessum stað allar götur fram að þessu,“ segir Sigurður. „Ég gerði langt hlé á ferlinum til að byggja upp fjölskyldu og tók 40 ára hlé þar til ég byrjaði aftur. Síðan hef ég verið í þessu í góðum félagsskap. Þetta eru eldri íþróttamenn sem koma reglulega saman og til dæmis á síðasta Íslandsmeistaramóti innanhús í febrúar voru yfir 60 keppendur í öllum flokkum.“ „Ég byrjaði að æfa frjálsar íþróttir aftur um sjötugt, eða fyrir um 15 árum. Síðan þá hef ég farið á yfir 20 alþjóðamót. Þetta er ákveðinn hópur sem hefur æft saman og farið í keppnisferðir. Mesta hafa allt að 20 manns úr hópnum farið í keppnisferð,“ segir Sigurður. „Ég hef æft reglulega allan þennan tíma, allt upp í fimm daga í viku. Þannig hef ég haldið vel í styrk og snerpu. Þetta er það sem allir eru að tala um, að halda áfram að hreyfa sig og það er heilsusamlegt.“ Alla verðlaunapeninga sem Sigurður vinnur fer hann með til Leiknis á Fáskrúðsfirði, þar sem þeir eru geymdir.Sigurður í kringlukasti í Búdapest.Sigurður fór í hjartaþræðingu fyrir um tveimur mánuðum síðan. Hann lét það þó ekki aftra sér frá því að fara á mótið í Búdapest. „Ég fékk hjartastíflu og fór í þræðingu fyrir tveimur mánuðum síðan. Ég fékk mjög góðan bata og var fljótur að byrja að hreyfa mig aftur. Ég fann fyrir auknum styrk og orku eftir þræðinguna,“ segir Sigurður. „Við það að taka fram skóna aftur finna menn fyrir sömu gleði aftur og jafnvel meiri. Ég tel að allmikið sé um menn sem hafi einhvern tíman verið í frjálsum íþróttum á yngri árum, sem myndu fá mikla ánægju af því að endurtaka leikinn,“ segir Sigurður. „Menn hafa líka gott af því að brjóta upp daginn og hitta fólk með svipuð áhugamál.“
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira