Rusl í matinn Birta Björnsdóttir skrifar 3. apríl 2014 20:00
Ruslahlaðborðið var á boðstólnum í Norræna húsinu fyrr í dag, en þar fór fram málþing undir yfirskriftinni Matarleifar og matarsóun. Tilgangurinn er að vekja máls á því gífurlega magni af mat sem hent er á hverju ári, en um þriðjungur allra matvæla endar í ruslinu. Dóra Svavarsdóttir er annar þeirra matreiðslumeistara sem sá um að framreiða dýrindis mat úr rusli á hlaðborðið. „En svo það komi nú fram þá er þetta ekki matur sem fenginn er úr ruslatunnum. Við báðum þrjár verslanir á höfuðborgarsvæðinu um að halda til haga þeim mat sem annars hefði farið í ruslið hjá þeim í nokkra daga. Úr því gátum við eldað um 150 kíló af mat,“ segir Dóra. Hún segir tilganginn vera að vekja athygli á því mikla magni sem við hendum af mat, jafnt framleiðendur sem neytendur, en áætlað er að 30 % til 50% af matvælum í heiminum sé hent. Undir þetta tekur Þuríður Helga Kristjánsdóttir, verkefnastjóri hjá Norræna húsinu. Hún segir um 9 milljónum tonna af matvælum vera hent árlega í Evrópu. „Þetta eru ekki bara neytendur, þetta er alls staðar í keðjunni þar sem neytendur eru í raun síðasti hlekkurinn. Við þurfum að byrja miklu fyrr, í framleiðslunni og svo í smásölunni. Og svo geta neytendur auðvitað alltaf bætt sig,“ segir Þuríður Helga. „Við viljum sjá hugarfarsbreytingu hjá verslunum, að þær flokki betur sorp og bjóði upp á matvæli á annan hátt,“ segir Þuríður.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira