30 þúsund manns að baki verkefni um verndun hálendisins Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 3. apríl 2014 14:56 "Við finnum fyrir sífellt auknum áhuga á alþjóðavísu á því að vernda hálendi Íslands. Bæði vegna þess að Íslands er vinsælt ferðamannaland og að fólk sem kemur hingað nær að tengist hálendinu sterkum böndum.“ MYND/LANDVERND
Þrjú ferðafélög og Samtök útivistarfélaga munu á morgun gerast aðilar að verkefninu Hálendið – hjarta landsins sem Landvernd hleypti af stokkunum síðasta haust. Undirritun þess efnis fer fram á útsýnispalli Perlunnar í Öskjuhlíð klukkan 13 á morgun. „Þetta er ótrúlega mikill liðsauki, því þetta eru fjölmennustu ferðafélög landsins,“ segir Guðmundur Hörður Guðmundsson, formaður Landverndar. Ferðafélögin eru Ferðaklúbburinn 4x4, Ferðafélag Íslands og Ferðafélagið Útivist. Um 30 þúsund manns munu því koma til með að standa að baki verkefninu að sögn Guðmundar. Markmið verkefnisins sé að vekja athygli á fyrirhuguðum stórframkvæmdum á hálendi Íslands og gefa fólki kost á að taka undir kröfu Landverndar um að hálendinu verði hlíft við þeim. „Með þessum liðsauka er þetta því að verða heljarmikið afl í baráttunni fyrir því að hálendinu verði hlíft fyrir frekari virkjunum og uppbygginu háspennulína,“ segir Guðmundur. Þegar hafa sex þúsund manns frá 70 löndum skrifað undir kröfuna um að hálendinu verið hlíft. Að sögn Guðmundar geta allir skrifað undir. „Þetta er ekki sér íslensk barátta heldur alþjóðleg barátta fyrir vernd hálendisins,“ segir Guðmundur. „Við finnum fyrir sífellt auknum áhuga á alþjóðavísu á því að vernda hálendi Íslands. Bæði vegna þess að Íslands er vinsælt ferðamannaland og að fólk sem kemur hingað nær að tengist hálendinu sterkum böndum.“ „Hingað koma ljósmyndarar til að taka myndir uppi á hálendi og bjóða okkur svo að fá þær myndir sem þeir tóku,“ segir Guðmundur. Hægt er að skrifa undir kröfu félaganna og samtakanna á vefsíðumverkefnisins.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira