Hávaði barst frá árshátíð Alcoa Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 25. apríl 2014 07:30 Björn Ingimarsson
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hefur borist kvörtun um hávaða vegna árshátíðar Alcoa í mars sem haldin var í íþróttahúsinu á Egilsstöðum. „Þetta er ekkert stórmál og snýr fyrst og fremst að skemmtanahaldi almennt í húsinu. Kvörtunin barst frá aðila sem býr ekki langt frá. Hans hugmynd snýr að því hvort ekki sé hægt að leysa málin þannig að skemmtanahaldið byrji fyrr og því ljúki fyrr,“ segir Páll Sigvaldason, formaður menningar- og íþróttanefndar. Árshátíð Alcoa mun hafa staðið til klukkan tvö að nóttu. Páll bendir á að þar sem um íþróttahús sé að ræða en ekki skemmtistað séu dyr hafðar opnar og þess vegna heyrist meira frá skemmtanahaldinu en ella. „Svo er verið að ganga frá fram eftir nóttu þar sem íþróttahúsið er tekið í notkun strax morguninn eftir.“ Björn Ingimarsson bæjarstjóri segir að athugasemdum verði komið á framfæri við þá sem halda árshátíðir og íbúum greint frá skemmtunum með fyrirvara. „Menn hafa þá þetta í huga næst þegar svona hátíðir verða haldnar svo að þetta þurfi ekki að pirra nágrannana. Það er full ástæða til að skoða þetta þegar bent er á að þetta megi betur fara.“ Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa, segir fyrirtækinu ekki hafa borist formlegt erindi vegna málsins. „Þegar það kemur munum við bregðast við því. Okkur þykir leiðinlegt ef íbúar hafa orðið fyrir ónæði.“
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fleiri fréttir Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Sjá meira