Vonar að helgin verði gúrka Gunnar Leó Pálsson skrifar 2. ágúst 2014 09:00 Stefán Magnússon maðurinn á bak við eina vinsælustu og umtöluðustu tónlistarhátíð landsins, Eistnaflug. Vísir/Daníel
Stefán Magnússon, sem er 38 ára gamall Hvergerðingur, er mikill rokkari og hefur alla tíð haft mikinn áhuga á tónlist. Það má segja að þessi áhugi á tónlist sé ástæðan fyrir því að hann fór að halda utan um eina flottustu tónlistarhátíð landsins. Þó svo að hann sjái til þess að yfir tvö þúsund manns sæki Neskaupstað heim, eina helgi á ári, tengist hann kaupstaðnum mjög lítið. „Ég starfaði sem íþróttakennari í fimmtán ár og bauðst starf sem íþróttakennari í Neskaupstað árið 2004, en ég hafði samt aldrei komið þangað fyrr en þá. Það var ótrúlega gaman að koma þangað og eftir að hafa búið þar í einhvern tíma fékk ég þessa hugmynd um að halda tónleika í Egilsbúð,“ segir Stefán spurður út í kynni sín af staðnum. Fyrsta Eistnaflugshátíðin varð að veruleika sumarið 2005, eftir að Stefán flutti í Neskaupstað.Fimmtíu manns á fyrstu hátíðinniÞegar Stefán byrjaði að skipuleggja fyrstu hátíðina var ekki komið neitt sem kallast Facebook og samskipahættirnir öðruvísi en í dag. „Ég auglýsti eftir hljómsveitum á vefsíðunni Dordingull og þar fóru samskiptin fram. Ég setti inn auglýsingu um hvort einhverjar hljómsveitir hefðu áhuga á að koma og spila í Neskaupstað þessa helgi og fékk styrk frá Menningarráði Austurlands upp á 400.000 krónur og fór sá peningur í rútuna. Það var þannig að þeir sem höfðu áhuga áttu bara að mæta á BSÍ klukkan átta á föstudagsmorgni og taka rútuna, tónleikar á laugardegi og svo keyrt heim á sunnudeginum. Þetta var bara „fyrstir koma fyrstir fá“.“ Fyrstu árin fór skipulagningin fram á þennan hátt en svo fór eftirspurnin að aukast og voru þá gerðar breytingar. Nú eru gerðir samningar við þær hljómsveitir sem koma fram og hefur umstangið í kringum hátíðina aukist mikið með árunum. Um fimmtíu manns borguðu sig inn á Eistnaflug árið 2005 en nú í ár voru gestir hátíðarinnar rúmlega tvö þúsund manns, auk þess sem Stefán hefur þurft að hafa um 300 starfsmenn með hljómsveitum.Fáránlegt að ofbeldisleysið sé frétt Stefán hefur látið skoðanir sínar gagnvart kynferðisofbeldi í ljós í fjölmiðlum og meðal annars sagt að hann mundi ekki halda áfram með Eistnaflugshátíðina ef nauðgun yrði tilkynnt á hátíðinni. „Ég á nákomna vini sem hafa verið beittir kynferðislegu ofbeldi og þetta snertir ótrúlega marga. Aðalmálið í þessu er að við erum að skemmta okkur og þetta á ekkert skylt við það. Þetta er bara svo ríkt í Íslendingum, þessi víkingaklikkun að fara á sveitaball og berja alla frá næsta bæjarfélagi. Þetta er orðið svo þreytt. Að það skuli vera frétt að það skyldi ekkert gerast á hátíðinni er náttúrulega algjörlega út í bláinn. Ég vona bara að verslunarmannahelgin verði algjör gúrka og ekkert að frétta.” Stefán vill að aðstandendur annarra útihátíða taki sín sjónarmið alvarlega og hvetur þá til þess að senda frá sér svipaðar yfirlýsingar. „Við höfum alltaf hamrað á þessu og gestirnir hamra á þessu við vini sína. Það er stórt atriði að gestirnir kunna þetta. Þeir sem koma á Eistnaflug vita hvernig hlutirnir virka. Eistnaflug er bara árshátíð og fólk vill ekki missa þessa hátíð.”En er hægt að gera eitthvað í því að gera hinar hátíðirnar samheldnari?„Við getum ekki sætt okkur við þessar misþyrmingar bara af því að Íslendingar séu að detta í það. Það þarf að hamra á þessu. Það þarf bara einn til þess að skemma svona hátíðir. Það þurfa allir að hjálpast að. Það er alveg hægt að útrýma þessu. Samheldnin sem við höfum staðið fyrir felst í að bera ábyrgð. Þegar hópurinn er gerður samábyrgur þá skiptir máli hver útkoman er. Markmið hverrar hátíðar þarf að vera skýrt og það er styrkleiki okkar og við höfum gert það markmið mjög sýnilegt. Það eru vissulega margar flottar hátíðir í gangi á Íslandi sem eru að standa sig, allar hátíðirnar eru virkilega að reyna standa sig að gera helgina glæsilega og að hún komi vel út.“ Dóms- og réttarkerfi landsins hefur löngum verið umtalað gagnvart kynferðisofbeldi og er Stefán hneykslaður yfir framgöngu mála í réttarkerfinu. „Við vitum hvernig þetta kerfi er á Íslandi. Þú þarft nánast að hafa nauðgunina á upptöku og stundum virkar það ekki einu sinni. Það er ekkert eðlilegt sem á fólk er lagt í þessum málum. Ég held það séu allir sammála um að sönnunarbyrðin er geggjuð. Auðvitað þarf hún að vera það en þetta getur ekki átt að virka svona. Miðað við tölurnar frá til dæmis bráðamóttökunni og svo kærumálin sem fara í gegn, þá bara passar þetta ekki. Við vitum það að þó að nauðgunin verði ekki sönnuð fyrir rétti, þá er ekki þar með sagt að ofbeldið hafi ekki átt sér stað.“Kveið því að drekka Að standa fyrir svona stórri hátíð, þar sem fjöldi fólks kemur saman tekur væntanlega sinn toll. Finnur aðstandandi eins og þú ekki fyrir mikilli ábyrgðarkennd? „Ég geri það, ég tek þetta allan tímann á mig og það er kannski málið við þetta. Maður hugsar; ef ég væri ekki að halda þetta þá hefði þetta ekki gerst.“ Stefán sem er að upplagi pönktrommuleikari úr hljómsveitinni Dys, er eins og fyrr segir mikill tónlistaráhugamaður, hefur farið víða á tónleika og hefur gaman að því að skemmta sér. Hefur innsýn hans og reynsla ekki mikil áhrif á velgengnina? „Jú, ég hef farið út um allt á tónleikahátíðir og þess háttar. Það hefur eflaust mikil áhrif. Um daginn fór ég á HellFest í Frakkalandi sem er risa tónlistarhátíð. Þarna eru allir beisiklí að reykja gras og við vorum kannski svona tuttugu sem vorum ekki að reykja gras. Sömu helgi voru fréttir um að þrjátíu hefðu verið teknir að fyrir reykja gras á Secret Solstice og maður verður bara svona; „hvað er að frétta?!“ það eru mörg þúsund manns að skemmta sér. Á Hell Fest gerðist ekkert, ég veit að grasreykingar eru ólöglegar en á meðan fólk er ekki labbandi um með kúbeinið í klikkun þá sé ég ekki mun á þessu og þeim sem eru fullir.“ Stefán setti tappann í flöskuna eftir Eistnaflugshátíðina í ár til að auðvelda sér lífið. „Ég ákvað að hætta að drekka til þess að einfalda líf mitt. Ég var farinn að kvíða fyrir því að drekka, að verða þunnur og þetta var bara hætt að vera gaman. Ég á líka auðvelt með að skemmta mér vel án áfengis.“ Þrátt fyrir það að Stefán standi fyrir einni stærstu samkomu ársins í Neskaupstað, sem er mikil innspýting fyrir í bæjarfélagið, er hann gáttaður yfir misjöfnun stuðningi frá fyrirtækjum bæjarins. „Ég kem með tvö þúsund manns í bæinn og bærinn er gjörsamlega þurrkaður upp af öllu og það eru nokkur fyrirtæki í Neskaupstað sem eru að styrkja mig. Ég er búinn að láta vita að ef þessu verður ekki kippt í liðinn þá fer ég með Eistnaflugið eitthvert annað, því ég efast ekki um að það sé til annað bæjarfélag sem er til í að fá þessa innspýtingu inn í kerfið. Það má ekkert út af bregða til að hátíðin fari í mínus, því þetta kostar sitt allt saman.“ Stefán er kvæntur Hrefnu Húgósdóttur og þau hafa verið saman í átján ár eða frá því þau voru í framhaldsskóla. Saman eiga þau tvö börn, Ragnheiði Maríu 10 ára og Júlíus Óla 16 ára. „Hrefna er búin að stappa í mig stálinu þegar ég er að skíta á mig, hún á helling í því að halda Eistnafluginu gangandi.“Hvað langar þig að gera meira, langar þig að standa í tónleikahaldi í Reykjavík eða jafnvel halda tónleikahátíð líkt og Eistnaflug í Reykjavík? „Maður er alltaf að skoða eitthvað. Nasa hefði til dæmis verið fullkominn salur til að hýsa svona tónleika. Hvaða fáviti ákveður það að loka Nasa til þess að geyma bækur þarna inni? Nasa er flottasti tónleikasalur landsins, þetta er svo sorglegt. Það á að búa til hótel eða bílastæði eða eitthvað álíka gáfað úr flottasta tónleikasal landsins.“ Þessi atorkumikli maður lítur björtum augum á framtíðina og vonast til þess að Eistnaflugshátíðin haldi áfram í Neskaupstað en hann horfir einnig á mögulegt tónleikahald á höfuðborgarsvæðinu. Hver veit nema að Stefán rífi trommukjuðana á loft á nýjan leik og geri meira í tónlist en þangað til ætlar hann að halda áfram að aðstoða fólk við að koma sér í form og svala rokkþyrstum rokkurum.
Mest lesið Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Innlent Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Erlent Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Innlent Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Innlent „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Innlent Karl Héðinn stígur til hliðar Innlent Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Innlent Sérsveitin handtók mann í Garðabæ Innlent Þetta er fólkið á bak við Skjöld Íslands Innlent Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Innlent Fleiri fréttir Tengist ekki skuggaflota Rússlands: Óskar eftir undanþágu vegna viðskiptaþvingana Játaði gróft ofbeldi gegn eigin foreldrum og að hafa ekið á mann Þingmaður telur að vísa ætti skvettaranum úr landi Þyrlan sótti slasaðan einstakling í Skaftafell Gæsluvarðhald yfir sveðjumanni í Úlfarsárdal framlengt þriðja sinni Sjaldséður beinhákarl í Faxaflóa Sérsveitin handtók mann í Garðabæ „Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Einn handtekinn vegna frelsissviptingar í Árbæ Meirihluti vill banna sjókvíaeldi Almenn andstaða við sjókvíaeldi og neikvætt viðhorf til þéttingar byggðar „Þetta er grátt mál þó ég hafi ekki gert neitt rangt“ Ætlar að kæra skvettarann sem segir árásina „bara brandara“ Virðist alls ekki sjá eftir skvettunni Sökk í mýri við Stokkseyri Gosmóðan fýkur á brott Meirihluti landsmanna ánægður með söluna á Íslandsbanka Karl Héðinn stígur til hliðar 56 prósent landsmanna neikvæð gegn þéttingu byggðar Umferð beint um Þrengslin í dag Sjö í fangageymslum og þremur vísað úr kirkju Stöðug virkni í einum gíg og gosmengun spáð á Suðurlandi Ættingjar að verða fyrir hryllilegum ódæðum Starfsfólk kannist ekki við uppsteyt á kvennadeild Landspítalans Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Skildirnir hafi hótað konum sem setji út á þá Fyrsti konsertflygilinn í Skálholtskirkju vígður „Hvetjum fólk til þess að treysta okkur bara fyrir því“ Sækja mann sem datt af hestbaki Lögregla afþakkar þjónustu Skjaldar Íslands og Guðni boðar brennu Sjá meira