Reynir að fá nafnið Joð samþykkt Gunnar Leó Pálsson skrifar 20. febrúar 2014 12:00 Tómas berst nú fyrir því að fá nafnið Joð samþykkt hjá mannanafnanefnd. fréttablaðið/daníel „
Ég er búinn að senda mannanafnanefnd beiðni um að samþykkja nafnið Joð,“ segir knattspyrnumaðurinn og verkfræðineminn Tómas Þorsteinsson en hann langar að fá millinafnið Joð samþykkt. Faðir hans, Þorsteinn J. Vilhjálmsson fjölmiðlamaður hefur gjarnan verið kallaður Þorsteinn Joð en hann heitir þó Þorsteinn Jens í þjóðskrá. „Joð-nafnið festist við mig þegar ég var í barnaskóla til að aðgreina mig frá öðrum Tómasi. Þá var pabbi mikið í sviðsljósinu og því Joð kjörið nafn á mig,“ útskýrir Tómas. Hann segist vera bjartsýnn á að fá nafnið samþykkt. „Ég er jákvæður og hef trú á þessu, sérstaklega því að millinöfn í dag þurfa ekki endilega að fallbeygjast,“ segir Tómas en segist þó ekkert verða brjálaður ef nafnið verður ekki samþykkt. Heldurðu að faðir þinn breyti Jens-nafninu í Joð ef nafnið verður samþykkt? „Ég held það sé alveg mögulegt en hann er samt svo íhaldssamur,“ segir Tómas léttur í lundu. Mannanafnanefnd hittist einu sinni í mánuði og mun Fréttablaðið að sjálfsögðu fylgjast grannt með stöðu mála þangað til niðurstaða fæst í málið.
Mest lesið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Furðubandið sem tryllti netið Lífið The Streets koma fram á Iceland Airwaves Lífið Fleiri fréttir Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Sjá meira