Úrskurðurinn hefur áhrif á réttarstöðu fjölda launamanna Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 20. febrúar 2014 09:00 Sumir hafa verið bótalausir í allt að mánuð. Fréttablaðið/GVA „
Tryggingastofnun ríkisins hefur túlkað lögin rangt. Ég lít svo á að úrskurðurinn hafi ótvírætt fordæmisgildi og sé afturvirkur. Þeir sem telja sig hafa verið hlunnfarna um endurhæfingarlífeyri ættu nú að geta sótt rétt sinn,“ segir Magnús Nordahl, yfirlögfræðingur Alþýðusambands Íslands, og bætir við að það sé ljóst að úrskurðurinn geti haft áhrif á réttarstöðu fjölda launafólks. Úrskurðarnefnd almannatrygginga úrskurðaði í lok síðasta mánaðar að greiðslur endurhæfingarlífeyris frá Tryggingastofnun ættu að hefjast um leið og greiðslurétti úr sjúkrasjóði er lokið. Stofnunin hefur hingað til túlkað lög um endurhæfingarlífeyri á þann hátt að hefja ætti greiðslur fyrsta dag næsta mánaðar eftir að veikindarétti og greiðslurétti úr sjúkrasjóði er lokið. Þetta hefur orðið til þess að sumir hafa verið bótalausir í allt að mánuð. Það var Stéttarfélag Vesturlands sem ákvað að láta reyna á málið. Kona sem var félagi í stéttarfélaginu hafði átt við heilsubrest að stríða. Hinn 8. janúar í fyrra hætti fyrirtækið sem hún vann hjá að greiða henni laun í veikindum. Hún sótti um dagpeninga sem hún átti rétt á hjá sjúkrasjóði Stéttarfélags Vesturlands. Í byrjun apríl sótti húm um endurhæfingarlífeyri hjá Tryggingastofnun en greiðslum úr sjúkrasjóði lauk 8. júní. Tryggingastofnun taldi að ekki bæri að greiða konunni endurhæfingarlífeyri fyrr en 1. júlí. Konunni var því ætlað að vera bótalausri í 22 daga. Signý Jóhannsdóttir, formaður Stéttarfélags Vesturlands, segir að það hafi lengi verið verkalýðshreyfingunni mikill þyrnir í augum hvernig Tryggingastofnun hefur túlkað lögin um endurhæfingarlífeyri. „Stéttarfélögin hafa í sumum tilvikum lengt greiðslurétt um einhverja daga eða vikur svo fólk yrði ekki bótalaust. Hafi það ekki verið hægt hefur fólk orðið að leita á náðir sveitarfélaga eða til ættingja um framfærslu. Við ákváðum því að láta reyna á þetta mál,“ segir Signý. Haft var samband við Tryggingastofnun í gærmorgun og spurt um viðbrögð við úrskurðinum. Í svari stofnunarinnar segir að svara sé að vænta í dag.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira