Fjórar verslanir hækka verð umfram verðbólgu 20. febrúar 2014 21:02 VÍSIR/VILHELM
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað hjá þrettán verslunum af fimmtán frá því í viku fimm árið 2013 þar til í viku sex árið 2014. Hækkunin nemur allt að 6,8% en verðbólgan á sama tíma var um 4%. Aðeins tvær verslanir lækkuðu vörukörfuna á tímabilinu. Vörukarfan hækkaði mest hjá Víði um 6,8%, um 5,6% hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, 5,5% hjá Nettó og 5,4% hjá Iceland, en hún lækkaði um 2,4% hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga og 1,2% hjá Kaskó. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. 13 verslanir af 15 hafa hækkað verð hjá sér á síðustu 12 mánuðum Til hliðsjónar má benda á að verð á matar- og drykkjarvörum í vísitölu neysluverðs hefur hækkað um 3,7% frá því í janúar 2013 þar til nú í janúar. Verslanirnar Víðir, Nettó, Iceland, Kaupfélag Skagfirðinga og Kaupfélag Steingrímsfjarðar hækkuðu meira en vísitala neysluverðs. Bónus, Krónan, Hagkaup, Nóatún, Samkaup–Úrval, 10-11, Samkaup–Strax og Kjarval hækka minna en vísitalan en hjá Kaskó og Kaupfélagi Vestur Húnvetninga hefur verð vörukörfunnar lækkað á milli ára. Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðal heimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis. Verðbreytingar voru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland; í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrvali, Tíu-ellefu, Samkaupum-Strax og Víði; í verslunum á landsbyggðinni Kjarval, Kaskó, Kaupfélagi Skagfirðinga, Kaupfélagi Steingrímsfjarðar og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga. Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum á milli verðmælinga. Ekki er um beinan verðsamanburð að ræða. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Sjá meira