Systkini fundu hvort annað í Walmart Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 18. febrúar 2014 17:30 Frá vinstri: Deidre Handtmann, John Blankendall, Sandy Watkins, Buddine Bullinger og John Maixner.
Fimm systkini sem fæddust í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum voru aðskilin þegar þau voru smábörn. Þau ólust upp á mismunandi stöðum og vissu ekki af hvort öðru fyrr en þau sáu minningargrein kynmóður sinnar. Þá gerði einn bróðurinn, John Maixner, sér grein fyrir því að hann kannaðist við eina systur sína, Buddine Bullinger, sem hann hafði heilsað margoft í versluninni Walmart í Dickinson þar sem hún hafði unnið í 23 ár. Buddine vissi hver kynmóðir sín var áður en hún lést en reyndi aldrei að hafa samband við hana. Í minningargreininni var minnst á dóttur hennar sem var á lífi, systur Buddine, að nafni Deidre Handtmann. Nokkrum vikum síðar fékk Buddine útfararstofuna í lið með sér til að reyna að hafa uppá Deidre. „Ég heyrði rödd hennar í fyrsta sinn þann 19. febrúar. Ég mun aldrei gleyma þeim degi,“ segir Deidre í samtali við Associated Press. Systurnar mæltu sér mót á heimili Deidre í Bismarck. „Það var ótrúlegt. Við erum á sextugsaldri. Ég var svo stressuð að hitta hana að ég vissi ekki hvað ég ætti að segja þegar hún opnaði hurðina. Ég vissi ekki hvað ég átti að gera. Þetta var mjög sérstakt,“ bætir Deidre við. Hún hafði samband við móður sína nítján árum áður en hún lést en hún minntist aldrei á að hún hefði átt fleiri börn sem hún gaf til ættleiðingar. Deidre náði að finna út hver systkini hennar væru og hitti John á veitingastað í júní. Hún sýndi honum mynd af Buddine og þá fattaði hann að hann hefði séð hana áður. „Ég datt næstum því úr stólnum því ég hafði séð hana í Walmart. Ég trúði þessu ekki,“ segir John. Öll fimm systkinin hittust síðan á heimili Deidre í október og voru það sérstakir fagnaðarfundir. „Ég fékk gæsahúð. Svo margar tilfinningar - við grétum og hlógum. Þetta var dásamlegt,“ segir Buddine.
Mest lesið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Jólabylgjan komin í loftið Jól Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Lífið samstarf Fleiri fréttir Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Sjá meira