Innlent

Fillippeysk börn komast aftur í skóla: "Við eigum mikið í þessu“

Hrund Þórsdóttir skrifar
Hálf milljón barna á Filippseyjum hefur skólagöngu aftur í þessum mánuði eftir fellibylinn sem gekk yfir í nóvember. Eyðileggingin er gríðarleg en um 30 þúsund Íslendingar studdu neyðaraðgerðir UNICEF á Filippseyjum.

Mörg börn á Filippseyjum hafa átt í miklum erfiðleikum eftir að fellibylurinn reið yfir í nóvember. „Það hefur aldrei svona mikill vindur komið á land nokkurs staðar í heiminum á byggðu bóli og eyðileggingin er gríðarleg. Börnin hafa ýmist misst heimili sín eða farið á flótta og sum hafa misst foreldra sína eða orðið viðskila við þá þannig að þau hafa orðið fyrir mjög erfiðu áfalli,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Stefán segir menntun grundvallarmannréttindi barna auk þess sem skólarnir hjálpi börnum á hamfarasvæðum að byggja upp eðlilegt líf. „Og við höfum trú á að það geti haft jákvæð áhrif á allt samfélagið, þetta verður ákveðin kjölfesta og hornsteinn að uppbyggingu,“ segir Stefán.

Auk uppbyggingar skólakerfis er búið að tryggja 800 þúsund manns aðgang að hreinu vatni og koma á góðum bólusetningum eftir fellibylinn. Yfir 10 þúsund Íslendingar auk fjölmargra fyrirtækja styrktu neyðarsöfnun vegna hans og söfnuðust 25 milljónir. Þá er ótalinn stuðningur 22 þúsund heimsforeldra og samfélags Filippseyinga hér á landi. „Þannig að við eigum dálítið mikið í þessu og ættum að fagna þessu með þessari hálfu milljón barna sem byrjar í skólanum í þessari viku og næstu,“ segir Stefán að lokum.

Í meðfylgjandi myndskeiði er einnig rætt við filippeysk börn sem nú eru aftur á leið í skóla.


Tengdar fréttir

Fyrsti íslenski fulltrúinn til Filippseyja

Talið er að fellibylurinn Haiyan hafi kostað hátt í 4500 manns lífið þegar hann reið yfir Filippseyjar. Tíu sérþjálfaðir einstaklingar frá Rauða krossi Íslands bíða þess að ganga til liðs við finnsk og norsk neyðarteymi, sem vinna streytulaust að björgun og aðlhynningu slasaðra í Filippseyjum.

Tala látinna hækkar enn

Meira en fimm þúsund manns eru látnir af völdum fellibylsins Haiyan, sem reið yfir á Filippseyjum fyrir hálfum mánuði.

15 milljónir hafa safnast til hjálparstarfs á Filippseyjum

Hundruðir þúsunda söfnuðust í dag til styrktar hjálparstarfi Unicef á Filippseyjum. Fullt var út úr dyrum á asíska veitingastaðnum Bambus þar sem fjölmargir filippseyingar búsettir á Íslandi komu saman.

Neyðarsöfnun UNICEF

Ástandið á Fillipseyjum er skelfilegt eftir að fellibylurinn Hayian gekk yfir eyjarnar. UNICEF er til hjálpar og biðlar til almennings um að leggja neyðaraðstoðinni lið með framlögum.

Gríðarlegar hamfarir á Filippseyjum

Fellibylurinni Haiyan skall á austurströnd Filippseyja á föstudaginn og olli gífurlegu manntjóni og eyðileggingu. Lík liggja á víð og dreif og hanga jafnvel úr trjám. Samband hefur enn ekki náðst við fjölda byggða og reiknað er með að fjöldi látinna muni hækka enn meira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×