Gylfi: Hélt að Rory McIlroy vissi hver ég væri Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. október 2014 22:37 Gylfi fagnar marki í leik með Swansea. Vísir/Getty
Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er í ítarlegu viðtali í breska dagblaðinu The Guardian en það birtist á heimasíðu þess í kvöld. „Þú mátt segja það ef þú vilt,“ sagði Gylfi við blaðamann Guardian um hvort að hann væri hinn íslenski David Beckham. Gylfi getur jú verið banvænn í aukaspyrnum, er þekktasti knattspyrnumaður Íslands í dag og í sambandi með fegurðardrottningu. „Hann labbar inn í viðtalsherbergið einum klukkutíma og 45 mínútum of seint. Það væri öllu jöfnu pirrandi en hann er afar viðkunnalegur náungi og er með góða afsökun - hann var á æfingasvæðinu,“ skrifaði greinarhöfundur. Gylfi skoraði sigurmark Swansea er liðið mætti Manchester United á Old Trafford í fyrstu umferð tímabilsins í haust. Eftir leikinn stóð hann fyrir utan leikvanginn þegar kylfingurinn Rory McIlroy, sem vann Opna breska meistaramótið í sumar, gekk skyndilega framhjá. McIlroy er dyggur stuðningsmaður Manchester United. „Hann hafði verið á vellinum að sýna bikarinn sem hann fékk. Ég var bara að bíða eftir leigubíl þegar hann labbaði framhjá mér. Ég bað um mynd sem var auðsótt,“ sagði Gylfi. „Hann óskaði mér alls hins besta og ég geri því ráð fyrir að hann vissi hver ég var. Nema þá að hann hafi bara viljað vera kurteis.“ Í viðtalinu er einnig fjallað um aðkomu hans að sjávarútvegsiðnaðinum hér á landi og hann rifjar upp skemmtilega sögu af því þegar faðir hans skammaði þáverandi knattspyrnustjóra Reading fyrir að taka Gylfa af velli. Þá segir hann frá dvölinni hjá Tottenham og endurkomunni til Swansea.
Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Sjá meira