Heppnasta þjóð í heimi með nágranna Heimir Már Pétursson skrifar 30. mars 2014 19:19
Grænlenskir dagar hófust í Melabúðinni á fimmtudag bæði með kynningu á matarmenningu Grænlendinga og alls konar uppákomum. En í dag var boðið upp á grænlenska tónlist í Hörpu og ýmsir grænlenskir hönnunargripir voru sýndir. Sörine Kaspersen sem býr á Íslandi segir grænlenska list og hönnum yfirleitt tengjast náttúrunni. Hún segir gaman bæði fyrir Grænlendinga og sem búa á Íslandi og fyrir Íslendinga að fá að kynna sér vandaðar vörur úr skinni frá heimalandi hennar, en margt mjög fallegra gripa voru til sýnis og sölu í Hörpu í dag. Hrafn Jökulsson formaður Hróksins og félagar hans hafa verið duglegir við að breiða skáklistina út á Grænlandi. Hann segir hugmyndina að grænlenskum dögum hafa komið upp meðal grænlandsvina. „Sem eru auðvitað fjölmargir og fer sífellt fjölgandi enda áhuginn á Grænlandi alltaf að aukast. Þannig að þessu koma Kalak vinafélag Íslands og Grænlands, Hrókurinn og grænlensk- íslenska viðskiptaráðið. Þannig að þetta eru svona menning, skák og viðskipti sem sameinuðust þarna um góðan málstað,“ segir Hrafn. Á morgun verður grænlenskt skákmót sem hefst með trommudansi í Vin og á þriðjudag verður málþing í Norræna húsinu þar sem forsprakkar úr grænlensku og íslensku viðskiptalífi flytja áhugaverð ávörp. Áhugi Íslendinga á Grænlandi hafi ekki verið mikill fyrir um áratug. „Þetta hefur breyst mjög mikið og augu æ fleiri Íslendinga að opnast fyrir því að þarna er stórbrotið ævintýraland bara rétt handan við hafið. Gjörólíkt Íslandi. Þarna býr stórkostleg þjóð og ég þreytist ekki á að segja það að við erum heppnasta þjóð í heimi með nágranna,“ segir Hrafn Jökulsson.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira