Listamenn stíga dansinn í kringum gullkálfinn Jakob Bjarnar skrifar 16. apríl 2014 10:35 Ingi Freyr telur orð Ragnars Kjartanssonar staðfesta að listamenn hafi á árunum fyrir hrun verið mjög handgengnir auðmönnum.
Talsverð umræða og heit er nú víða í netheimum um samfélagslegt hlutverk listamanna í tengslum við hrunið 2008, fyrir og eftir. Tilefnið er kafli í Hamskiptum Inga Freys Vilhjálmssonar þar sem hann rekur sögu sem tengist samskiptum Landsbankans og listamanna í Klink og Bank sem fengu húsnæði til afnota fyrir tilstuðlan Björgólfs Guðmundssonar. Og þá leitt að því líkum að listamenn hafi verið býsna handgengnir peningavaldinu og auðmönnum. Ingi Freyr tengir svo við þá frásögn viðtal við Ragnar Kjartansson listamann í Víðsjá Ríkisútvarpsins 9. október 2013 – þar sem Ragnar talar um hræðslu sem hann upplifði við peningavaldið á árunum fyrir hrun. Eftir hrun varð augljós breyting í yrkisefnum listamanna; aukning í samfélagslegri myndlist. Ingi Freyr vitnar í orð Ragnars: „Hún var dálítið skrítin af því þetta var svona eftirámyndlist, það var eins og listamenn hefðu haft samviskubit og vildu ráðast á valdið eftir á, þegar það var hrunið, þetta danska andspyrnuhreyfingarsyndróm að ráðast á nasistana eftir að þeir eru búnir að tapa.“Ingi Freyr segir að skilja megi orð Ragnars svo að nær hefði verið að gera slíka samfélagslega gagnrýna myndlist á árunum fyrir hrun, á meðan peningavaldið hélt enn velli. „Þetta var hins vegar ekki gert og útskýrir Ragnar ágætlega af hverju listamenn voru ekki gagnrýnir á þetta peningavald. Í orðum hans felst líka gagnrýni á að slík gagnrýni á peningavaldið sé sett fram eftir að það er liðið undir lok.“
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira