Skortur á hjúkrunarfræðingum ef af verkfalli háskólakennara verður Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 16. apríl 2014 13:10 „Tugir okkar hafa ráðið sig í störf hjá Landspítalanum í sumar sem hjúkrunarfræðingar,“ segir Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir, hjúkrunarfræðinemi og ein þeirra sem stefnir á útskrift í vor.
Gífurlegur fjöldi hjúkrunarnema stefnir á útskrift í vor. Um 100 nemar gera ráð fyrir því að útskrifast frá Háskóla Íslands og 50 nemar frá Háskólanum á Akureyri. Starfsemi heilbrigðisstofnana í sumar er í uppnámi ef af verkfalli háskólakennara verður að sögn hjúkrunarnema og yfirmanns á Landspítalanum. Verkfallið myndi hafa þau áhrif að útskrift nemenda við háskóla landsins seinkar og í tilviki hjúkrunarnema fá þeir ekki starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingar. „Tugir okkar hafa ráðið sig í störf hjá Landspítalanum í sumar sem hjúkrunarfræðingar,“ segir Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir, hjúkrunarfræðinemi og ein þeirra sem stefnir á útskrift í vor. „Ef við erum að vinna sem nemar þarf alltaf að vera fullgildur hjúkrunarfræðingur á bak við okkur, sem ber þá ábyrgð á störfunum,“ segir Jóhanna. Breyta þurfi vaktaskipulagi deilda á Landspítalanum ef útskrift hjúkrunarnema seinkar og nú líti út fyrir að skortur verði á hjúkrunarfræðingum í sumar. Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdarstjóri hjúkrunar á Landspítalanum, tekur undir með Jóhönnu. „Við getum ekki falið þeim sömu ábyrgð og störf sem hjúkrunarnemum og sem útskrifuðum hjúkrunarfræðingum.“ Verkfall háskólakennara muni því augljóslega hafa áhrif á starfsemi spítalans. „Þetta er á þeim tíma sem fólk fer í sumarleyfi. Á hverju ári treystum við á að fá nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga til starfa. Við erum að skoða það núna hvernig við þurfum að bregðast við ef tafir verða á útskrift þeirra,“ segir Sigríður. „Við vonum að það verði ekki af verkfallinu.“
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira