Þriðjungur af öllu gistirými í einkaherbergjum 7. apríl 2014 18:48
Eftir hrun og með tilkomu vefja eins og Airbnb.com, hafa æ fleiri íbúðaeigendur farið að leigja út húsnæði til ferðamanna. Um 180 manns eru með leyfi fyrir slíkri heimagistingu í Reykjavík í dag en vel yfir 900 íbúðir og herbergi standa ferðamönnum til boða á Airbnb. Talan endurspeglar þó ekki fjöldann í raun, því eitthvað er um endurtekningar þar sem fólk er ýmist að leigja út íbúð í heilu lagi eða herbergi innan íbúðar. Um 3000 hótelherbergi eru í Reykjavík en Kristófer Óliversson, eigandi Center hótelanna, telur að um 1500 gistiherbergi séu í einkaíbúðum. Sum sé þriðjungurinn af öllu gistirými í Reykjavík. Fólk sem leigir út einkahúsnæði getur valið að leigja ferðamönnum í 8 nætur eða lengur og þarf þá engin leyfi en greiðir fjármagnstekjuskatt af leigunni eins og aðrir leigusalar. Þeir sem vilja geta leigt ferðamönnum í skemmri tíma þurfa hins vegar bæði rekstarleyfi frá lögreglu og starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti á viðkomandi stað. Þetta virðist hafa staðið í allmörgum, og því ætla menn að drjúgur hluti af gistirými á einkaheimilum sé á svarta markaðnum. Stóru málin rýna í þetta mál í kvöld og ræddu meðal annars við Bjarna Kjartansson, sviðsstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, sem segir ýmsum fallast hendur þegar þeir heyra hvaða eldvarnarkröfur eru gerðar til þeirra sem leigja ferðamönnum gistingu í 7 nætur eða skemur. Stóru málin eru á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld kl.19:20. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra situr fyrir svörum. Þátturinn er í opinni dagskrá.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira