Hvorki fórnarlömb né hetjur Birta Björnsdóttir skrifar 28. mars 2014 20:00 Steinunn Ása Þorvaldsdóttir.
Hlutverk fjölmiðla og ábyrgð á virkri samfélagsþáttöku fatlaðs fólks var til umræðu á málþingi sem haldið var í Norræna húsinu fyrr í dag. Kristín Björnsdóttir er ein höfunda nýútkominnar bókar sem nefnist Fötlun og menning, sem fjallar meðal annars um birtingarmynd fatlaðra í fjölmiðlum. Hún segir birtingarmyndina vera einkum tvennskonar. ,,Algengast er að í fjölmiðlum sé annaðhvort fjallað um fatlað fólk sem hetjur eða fórnarlömb. Hetjurnar eru þá fólk sem er að gera eitthvað sem við eigum ekki von á að þau geti gert. Þó við höfum öll gaman að hetjum eru þær ekki beint lýsandi fyrir daglega reynslu fatlaðs fólks og fórnarlömbin eru það ekki heldur," segir Kristín. ,,Það sem að lítið er talað um fatlað fólk í fjölmiðlum skiptir máli að þegar það er gert sé talað um fatlað fólk á þann hátt sem það vill sjálft." Kristín segir mikilvægt að fatlaðir séu ekki eingöngu í fjölmiðlum til að ræða málefni fatlaðra. ,,Það er algjört lykilatriði ef við lítum á fatlað fólk sem hluta af borgurum þessa lands, þá hljóta þau að hafa rödd og skoðanir eins og allir aðrir."Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, sem einnig sat ráðstefnuna, tekur undir þetta. ,,Jú, það er nákvæmlega það sem við erum að tala um hérna. Það er mikilvægt að allir taki þátt í öllu, fatlaðir líka. Þeir mega alls ekki gleymast í þessarri umræðu. Við getum öll gert betur, við þurfum bara að vera dugleg að berjast og segja það sem okkur finnst." Steinunn Ása segir það jafnframt mikilvægt að talað sé við fatlaða sjálfa, það séu ekki aðrir sem tali sífellt fyrir þeirra hönd. ,,Já það kemur oft fyrir og það er það erfiðasta. Þau vita ekki betur en við."
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira