Ekki ástæða til að ítreka ábendingar um útvistun verkefna Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 28. mars 2014 14:37 vísir/vilhelm
Ríkisendurskoðun telur ekki ástæðu til að ítreka ábendingar sínar til stjórnvalda um útvistun verkefna til Bændasamtaka Íslands. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Ríkisendurskoðunar. Ábendingarnar voru settar fram í skýrslu stofnunarinnar árið 2011 og var beint til atvinnuvegaráðuneytisins. Tvær ábendingar af fimm hafa þó ekki enn komið að fullu til framkvæmda. Ríkisendurskoðun mun því fylgjast með framvindu mála og aðhafast síðar ef ástæða þykir til. Samtökin töldu óæskilegt að Bændasamtökin önnuðust bæði framkvæmd stjórnsýsluverkefna og eftirlit með henni. Ráðuneytið, sem áður hét landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti, ætti að hafa frumkvæði að endurskoðun fyrirkomulagsins. Þá sé mikilvægt að ráðuneytið hefði ávallt óheftan aðgang að þeim gögnum um íslenskan landbúnað sem samtökin byggju yfir vegna umræddra verkefna. Ráðuneytið þyrfti að fylgjast betur með hvort ráðstöfun ríkisframlaga til landbúnaðar væri í ósamræmi við lög, reglur og samninga og skilaði þeim árangri sem til væri ætlast. Í skýrslunni kemur einnig fram að óæskilegt þyki að Bændasamtökin önnuðust gerð hagskýrslna um landbúnað enda þyrfti óhlutdrægni slíkra skýrslna að vera hafin yfir vafa. Þá telur Ríkisendurskoðun að samningar stjórnvalda við Bændasamtökin þyrfti að kveða skýrt á um hvort og þá að hve miklu leyti fjárreiðulög, stjórnsýslulög, upplýsingalög og lög um opinber innkaup giltu um verkefnin. Í nýrri eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að nú þremur árum síðar er unnið að flutningi verkefna frá Bændasamtökunum til stofnana ráðuneytisins og gerðar hafa verið ráðstafanir til að tryggja aðgengi þess að gögnum. Því telur Ríkisendurskoðun ekki ástæðu til að ítreka fyrstu ábendinguna að svo stöddu en mun fylgjast með framvindu málsins og mögulega aðhafast síðar ef þurfa þykir. Þá kemur fram í skýrslunni að ráðuneytið hafi að eigin sögn bætt eftirlit sitt með framkvæmd verkefnanna, hagskýrslugerð sé nú í höndum Hagstofu Íslands og Matvælastofnunar og skýrt sé kveðið á um lögbundnar skyldur Bændasamtakanna í nýlegum samningum ráðuneytisins við þau. Því telur Ríkisendurskoðun að brugðist hafi verið við hinum þremur ábendingunum þannig að ekki sé þörf á að ítreka þær en hvetur jafnframt ráðuneytið til að efla enn frekar eftirlit sitt og eftirfylgni með framkvæmd verkefnanna. Alþingi og stjórnvöld hafa útvistað ýmsum stjórnsýsluverkefnum á sviði landbúnaðarmála til Bændasamtaka Íslands. Meðal annars taka samtökin ákvarðanir um opinberar greiðslur til bænda, annast útreikning þeirra og afgreiðslu. Einnig sinna samtökin ráðgjöf við stjórnvöld og fulltrúar þeirra sitja í nefndum sem taka ákvarðanir um landbúnaðarmál.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira