Fullkomin þjónustumiðja aldraðra Stefán Árni Pálsson skrifar 15. mars 2014 10:56 Þjónustumiðstöð aldraðra skyldi hýsa margvíslega félagsaðstöðu, hádegisveitingar, miðstöð heimaþjónustu og dagvist ásamt fleiru. mynd/aðsend
Í hugmyndavinnu bæjarstjórnar, sem fyrst var kynnt á íbúafundum í Reykjanesbæ fyrir 10 árum síðan, var kynnt framtíðarsýn um að byggja eitt þjónustusvæði í þágu aldraðra í miðjum bænum. Þjónustumiðstöð aldraðra skyldi hýsa margvíslega félagsaðstöðu, hádegisveitingar, miðstöð heimaþjónustu og dagvist ásamt fleiru. Þjónustumiðstöðin yrði samtengd öryggisíbúðum og íbúðum í hjúkrunarheimili en göngufæri væri í leiguíbúðir og þjónustuíbúðir sem öldruðum myndu bjóðast. Horft var til verslana- og þjónustukjarna við Krossmóa í næsta nágrenni. Með staðsetningu miðsvæðis og við Lífæð bæjarins var tryggt að allir aldraðir bæjarbúar, hvar sem þeir búa í bænum, ættu auðvelt aðgengi að almennri þjónustu sem byðist á svæðinu og auðvelt væri fyrir ættingja og kunningja að líta við. Nú, tíu árum síðar, er risinn þessi þjónustukjarni, með aðstöðu til handavinnu, félagsstarfs, heimaþjónustu, með eldhúsi og veitingaaðstöðu, dagvist, sjúkraþjónustu, líkamsrækt og öðrum þjónustueiningum. Reistar hafa verið samtengdrar þjónustuíbúðir, öryggisíbúðir, auk almennra leiguíbúða í nágrenninu. Nýjasti áfanginn er glæsilegt 60 rúma hjúkrunarheimili sem Hrafnista rekur. Á síðustu 10 árum hafa með þessu orðið til 90 hjúkrunarrými í Reykjanesbæ, því auk þessa 60 rúma heimilis, fékkst fram breyting á 30 dvalarheimilisrýmum á Hlévangi í hjúkrunarrými. „Stundum þykir okkur hægt miða. En þá er mikilvægt eiga sterka Framtíðarsýn og vinna markvisst að henni. Það hefur tekist mun víðar en í skólamálum. Þannig hefur okkur tekist með góðu samstarfi við opinbera aðila og einkaaðila að byggja þessa fallegu og mikilvægu þjónustumiðju í þágu aldraðra á aðeins 10 árum. Það er ástæða til að óska öllum íbúum Suðurnesja hjartanlega til hamingju með það," segir Árni Sigfússon bæjarstjóri.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira