Þjóðaratkvæðagreiðsla fjármálaráðherra ekkert síðri svik Jón Júlíus Karlsson skrifar 15. mars 2014 13:03 Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, fagnar því að opnað sé á þjóðaratkvæðagreiðslu.
Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, telur að þjóðaratkvæðagreiðsla um að slíta viðræðum við Evrópusambandið séu ekki síðri svik af hálfu Sjálfstæðisflokksins og ef engin atkvæðagreiðsla fari fram. Katrín segir fjármálaráðherra í leikjafræði og það sé henni ekki að skapi. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði í samtali við kvöldfréttir Stöðvar 2 í gær að hugsanlegt væri að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um að draga aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka. Ef þjóðin felldi þá tillögu væri staðan gagnvart Evrópusambandinu óbreytt. Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, fagnar því að opnað sé á þjóðaratkvæðagreiðslu en telur tillögu fjármálaráðherra óheppilega. „Það er jákvætt að fjármálaráðherra skuli vera til viðræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu. Með hvaða hætti það er gert þá finnst mér að það eigi að spyrja þjóðina hreint út og hætta að stunda þessa leiki eins og mér finnst fjármálaráðherra vera að gera núna. Þetta er leikjafræði sem ég kann ekki vel við og krafan er sú að menn komi hreint fram og spyrji hreint út hvað þjóðin vill,“ segir Katrín. Jafnmikil svik Katrín telur að tillaga fjármálaráðherra sé allt önnur en boðað var fyrir kosningar. Fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um að slíta viðræðum við Evrópusambandið þá séu það ekki síður svik við kjósendur. „Það eru jafnmikil svik í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu eins og að gera þetta ekki. Ég ætla að leyfa mér að vera bjartsýn og vona að formaður Sjálfstæðisflokksins sé búinn að opna á þjóðaratkvæðagreiðslu og sé til viðræður um hana,“ segir Katrín. Hún leggur áherslu á að þjóðin fái að segja hug sinn. „Ég myndi spyrja hvort að þjóðin vilji halda viðræðunum áfram eða hvort það eigi að hætta þeim. Það er eðlilegast. Spyrjum bara þjóðina hreint út hvað hún vill og fáum það skýrt fram.“
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Missti hönd í mótmælunum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira