Samfylkingin stærsti flokkurinn í Reykjavík Kjartan Atli Kjartansson skrifar 26. mars 2014 11:03 Dagur B. Eggertsson er oddviti Samfylkingarinnar í borginni. Vísir/GVA
Samfylkingin er nú stærsti stjórnmálaflokkur Reykjavíkur með 28% fylgi. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands sem unnin var fyrir Morgunblaðið. Samfylkingin fengi fimm borgarfulltrúa ef gengið væri til kosninga nú. Björt framtíð er næst stærsti flokkurinn í borginni, með 24,8% fylgi og fengi flokkurinn fjóra borgarfulltrúa. Sjálftæðisflokkurinn er þar skammt á undan með 24,4% fylgi og fengi einnig fjóra borgarfulltúa. Í síðustu borgarstjórnarkosningum fékk Sjálfstæðisflokkurinn fimm borgarfulltrúa og 33,6% fylgi. Fylgi flokksins hefur einnig minnkað frá síðustu könnun Félagsvísindastofnunar HÍ, en þá mældist flokkurinn með 28,4%. Björt framtíð tapar einnig fylgi, ef miðað er við gengi Besta flokksins í síðustu kosningum. Besti flokkurinn á nú sex fulltrúa í borgarstjórn og því myndi þeim fækka um tvo. Píratar og Vinstri grænir fengju sinn borgarfulltrúann hvor ef gengið væri til kosninga nú. Píratar mælast með 9,1% fylgi og Vinstri grænir með 8,6%. Dögun mælist með næst minnsta fylgi flokkanna í Reykjavík og fengju 2,8% atkvæða ef niðurstöður könnunarinnar myndu endurspegla kosningaúrslitin í vor. Framsókn mælist með minnsta fylgið í könnuninni, flokkurinn er með 2% fylgi. Könnunin var gerð dagana 17. til 23. mars og var bæði netkönnun og símakönnun. Svarhlutfall var 60%. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Kosningar 2014 fréttir Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira