Gunnar Bragi fundaði með Evrópumálaráðherra Noregs Stefán Árni Pálsson skrifar 26. mars 2014 19:30 Vidar Helgesen og Gunnar Bragi Sveinsson. mynd/aðsend
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og Vidar Helgesen, Evrópumálaráðherra Noregs, funduðu í Reykjavík í dag en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. Á fundinum sammæltust þeir um að styrkja samvinnu ríkjanna enn frekar í málefnum Evrópska efnahagssvæðisins, m.a. með upplýsingaskiptum, starfsmannaskiptum og nánara samráði á öllum sviðum sem varða samninginn, eins fljótt og auðið er. Fram kemur í tilkynningunni að íslensk og norsk stjórnvöld líta svo á að EES-samningurinn sé grundvöllur samstarfs ríkjanna við Evrópusambandið. Samningurinn greiði fyrir viðskiptum, opni markaði og ýti undir hagsvöxt. Ráðherrarnir lögðu áherslu á mikilvægi þess að allir aðilar samningsins gerðu sitt til að tryggja framkvæmd hans.Ríkisstjórnir beggja landa hafa breytt stefnu í Evrópumálum frá því að þær tóku við völdum á síðasta ári og á fundinum ræddu ráðherrarnir þá möguleika og áskoranir sem felast í EES-samvinnunni. Þeir lögðu áherslu á að vinna saman að úrbótum, einkum varðandi upptöku regluverks í EES samninginn og löggjöf landanna, svo að tryggja mætti áfram jafnan markaðsaðgang í Evrópu fyrir íslensk og norsk fyrirtæki. Stjórnvöld í báðum löndum hyggjast grípa til aðgerða til að tryggja hraðari innleiðingu. Ráðherrarnir sögðu það forgangsverkefni að taka þátt í ákvarðanaferli ESB þegar sambandið ræddi nýja löggjöf varðandi innri markaðinn og þar með EES. Þá væri báðum þjóðum mikilvægt að nýta sem best þá möguleika sem fælust í þátttöku í ESB verkefnum á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar ofl.
Mest lesið Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Endaði út af eftir framúrakstur Innlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Erlent Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Erlent Fleiri fréttir Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Sjá meira