Leiðtogasamtök fyrir unga Evrópubúa Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar 26. mars 2014 23:26 Samtök Rebekku hlutu styrk frá Evrópusambandinu til að halda sumarnámskeið í Kosovó. Vísir/Samsett mynd
Rebekka Rún Mitra, 18 ára gömul stúlka og nemandi hjá Menntaskólanum við Hamrahlíð hefur stofnað til samtaka fyrir unga evrópska leiðtoga sem vilja gera samfélagið að betri stað. Samtökin heita Young European Leaders for Change (ísl. Ungir evrópskir leiðtogar fyrir breytingum), en markmið samtakanna er að stuðla að því að ungt fólk taki sér leiðtogahlutverk í fjölmenningarsamfélagi nútímans.„Oft er sagt að ungt fólk sé rödd framtíðarinnar. Mér finnst að ef við hjálpum ungu fólki að fá rödd núna þá getur það líka haft mikið að segja, ekki bara um framtíðina heldur líka daginn í dag," segir Rebekka í viðtali við Vísi.is.Sumarnámskeið í Kosovó Samtökin fengu verkefnisstyrk frá menningarsjóðnum Evrópa unga fólksins sem heyrir beint undir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Styrkinn ætla Rebekka og samstarfsmenn hennar að nota til þess að halda sumarnámskeið fyrir ungt fólk í Pristínu, höfuðborg Kosovó. Fjármagnið verður nýtt á þann hátt að þátttakendur námskeiðsins þurfa aðeins að borga 30% af heildarkostnaði ferðarinnar. Ungt fólk á aldrinum 16-19 ára frá Albaníu, Hollandi, Íslandi, Ítalíu, Kosovó, Litháen, Makedóníu, Noregi, Serbíu og Tyrklandi mun geta sótt um að taka þátt í námskeiðinu. "Oft er það þannig að fólk úr Vestur-Evrópu veit kannski ekki mikið um þessi vandamál sem hafa verið í Austur-Evrópu, stríðin sem hafa verið þar," segir Rebekka. "Það er ótrúlega létt á Íslandi að vera bara inni í litlum heimi og vita ekki alveg hvað er að gerast fyrir utan þennan heim." 27 ungmenni fá að koma og taka þátt í námskeiðinu, og þar af 2 frá Íslandi. Aðspurð segir Rebekka einu kröfurnar varðandi inntöku í námskeiðið vera fróðleiksfýsn og vilji til að gera samfélagið að betri stað. Hægt er að lesa meira um samtökin og námskeiðið á vefsíðu þeirra.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira