Fækkar á Ólafsfirði en fjölgar á Siglufirði eftir göngin 28. apríl 2014 09:48 Í Héðinsfjarðargöngum Vísbendingar eru um að Héðinsfjarðargöng hafi jákvæð áhrif á byggðaþróun á norðanverðum Tröllaskaga. Fréttablaðið/Vilhelm
Siglfirðingum hefur fjölgað eftir opnun Héðinsfjarðarganga og byggðafesta hefur aukist í Fjallabyggð, Þetta kemur fram í rannsókn þeirra Þórodds Bjarnasonar og Kjartans Ólafssonar, félagsfræðinga við Háskólann á Akureyri. Rannsóknin er liður í stærri rannsókn á samfélagslegum áhrifum Héðinsfjarðarganga á mannlíf á norðanverðum Tröllaskaga. Áður en göngin voru opnuð vöruðu sömu höfundar við því að vegna óhagstæðrar samsetningar mannfjöldans gæti íbúum fækkað áfram um langan tíma eftir göng, þótt flutningsjöfnuður yrði stöðugur. Fólksfækkun á sér stað á Ólafsfirði en fólksfjölgun á Siglufirði vegur upp á móti fækkuninni þar og Fjallabyggð í heild stendur ágætlega. „Þessar niðurstöður eru talsvert jákvæðari en við bjuggumst við. Innlendar og erlendar rannsóknir hafa sýnt að samgöngubætur sem bæta lífskjör íbúanna umtalsvert leiða ekki alltaf til fólksfjölgunar. Samsetning mannfjöldans í Fjallabyggð var orðin afar óhagstæð eftir áratuga fólksfækkun og óvíst að ný tækifæri dygðu til að draga nægilega margt nýtt fólk til byggðarlagsins,“ segir Þóroddur.Þóroddur Bjarnason.„Jafnvel þótt jafnvægi næðist í fólksflutningum hefði hátt hlutfall eldri borgara og lágt hlutfall fólks á barneignaraldri að óbreyttu leitt til mikillar fólksfækkunar. Það hefur gengið eftir í Ólafsfirði en á Siglufirði hefur fækkun skráðra íbúa stöðvast og talsvert fleiri dvelja þar í raun en áður. Það skýrist að stórum hluta af aukinni byggðafestu fólks milli tvítugs og fertugs, sérstaklega meðal yngri kvenna,“ bætir Þóroddur við. Ólafsfjörður stendur ekki jafn vel og Siglufjörður. Kemur fram í rannsókninni að uppbygging í ferðaþjónustu hafi verið mikil á Siglufirði en lítil sem engin í Ólafsfirði. Einnig velta höfundar upp þeim möguleika að ávinningur Siglfirðinga að tengjast Eyjafirði hafi verið meiri en ávinningur Ólafsfjarðar að tengjast Siglufirði einum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að Héðinsfjarðargöngin hafi skilað árangri til skemmri tíma. Nauðsynlegt sé þó að fylgjast með lengur og gera langtímarannsókn eftir um tvo áratugi til að meta lýðfræðileg áhrif ganganna.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira