Innlent

Skorinn upp með plasthnífi á meðan annar hélt rifjunum í sundur

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Þær björgunaraðgerðir sem unnar voru á Landspítalanum á sunnudag í síðustu viku eftir að karlmaður var stunginn með hnífi á Hverfisgötu þykja kraftaverki líkastar. Maðurinn, Sebastian Andrzej Golab, var stunginn í gegnum hjartað og voru áverkarnir verulega alvarlegir, en á tímapunkti var honum ekki hugað líf. Þrekvirkið sem læknar og heilbrigðisstarfsfólk unnu og komu Sebastiani til bjargar var því ótrúlegt. Hann var útskrifaður af sjúkrahúsinu í gær og hefur það gott. 

Sjúklingurinn að fjara út

Það voru skurðlæknarnir Tómas Guðbjartsson og Helgi Kjartan Sigurðsson sem tóku á móti Sebastiani á Landspítalanum, en báðir voru þeir á bakvakt heima hjá sér. „Ég sat bara að snæðingi með frúnni. En við gátum komið okkur niður eftir mjög hratt þannig að við vorum komnir um 1-2 mínútum eftir að sjúklingurinn kemur inn. Þá er hann að fjara út fyrir framan okkur á kannski 2-3 mínútum og augljóst að þetta var ekki að stefna í rétta átt,“ sagði Tómas í Bítinu á Bylgjunni í morgun, en Sebastian hefur gefið honum góðfúslegt leyfi til að segja frá sögunni.

„Ég er orðlaus. Ég er bara venjulegur maður og myndi gefa þessu fólki sem bjargaði lífi mínu bæði allt sem ég á og ekki á,“ segir Sebastian.vísir/ernir
Opin hjartaaðgerð inni á bráðamóttöku

Ástandið var það slæmt að enginn tími gafst til að fara með Sebastian á skurðstofu, sem staðsett er á annarri hæð hússins. Ákvörðun var því tekin um að fara inn í eitt herbergi slysavarðstofunnar og opna þar brjósthol hans. „Það var bara með hálfgerðum plasthníf sem er notaður meira til að hreinsa sár. Ekki eiginlegur skurðhnífur,“ segir Tómas.

„Þá er farið inn í brjóstholið vinstra megin og markmiðið er að létta á þessu blóði sem er í kringum hjartað. Kallað hjartaþröng. Þá er tvennt sem gerist. Annars vegar að sjúklingnum blæðir út, en það eru að fara kannski fimm lítrar um kerfið á mínútu, og það þarf ekki stórt gat á hjartað til að sjúklingnum blæði út á nokkrum mínútum. En það er sekkur í kringum hjartað sem kallast gollurshús og hann að hluta til heldur blóðinu inni og minnkar blæðinguna. En að sama skapi gerir hann það líka að verkum að blóðið safnast saman fyrir utan hjartað þannig að hjartað nær ekki að fylla sig. Það var það sem var að gerast, hvort tveggja.  Honum var farið að blæða út og hann fer hreinlega í hjartastopp fyrir framan okkur.“

„Með hjartað í lúkunum“

Gollurshúsið er bandvefshulstur sem liggur utan um hjartað, eða þekur það og var það opnað þegar Sebastían fór í hjartastopp og síðan hjartahnoðað beint. „Eða eins og maður segir, með hjartað í lúkunum.“

Skömmu síðar náði Tómas hjartanu aftur í gang, en á þessari stundu var Sebastiani nánast búið að blæða út. Aðalatriðið með hnoðinu er að koma blóði upp til heilans.

„Heilinn þarf ekki nema kannski fjórar mínútur og þá byrja frumurnar að skemmast óafturkræft, þannig að aðalatriðið er að reyna að varðveita heilastarfsemina.“

Hélt rifbeinunum í sundur

Á meðan þessu stóð hélt Helgi Kjartan rifbeinunum í sundur, en svokölluð rifjaglenna var ekki til staðar. „Hann er sterkur maður,“ segir Tómas.

Tómas notaði plasthníf til að skera sjúklinginn upp. Hann setti síðan einn fingur í gatið á hjartanu til að koma í veg fyrir að það myndi dæla út blóði.vísir/pjetur
Sebastian fór fjórum til fimm sinnum í hjartastopp eftir að Tómas náði hjartslættinum aftur í gang. Það var vegna blóðleysis en talið er að Sebastian hafi misst um fimm lítra af blóði.

Með fingurinn í gatinu til að koma í veg fyrir blóðmissi

„Við sjáum allt í einu að það var kominn blóðþrýstingur og allt að ganga í rétta átt. Þá var auðvitað að setja puttann í gatið, halda áfram að fylla blóð, og þegar sjúklingurinn var orðinn sæmilega stabíll þá tekur maður svona sauma í þetta gat sem er í hjartanu. Maður verður samt að passa sig hvað maður er að gera því það eru kransæðar þarna allt í kring sem liggja utan um hjartað og næra hjartað. Það er ekki sama hvernig maður gerir þetta.“

Myndi gefa þeim allt sem ég á

Sebastian sagði í samtali við Fréttablaðið á mánudag vera afar þakklátur og ánægður með að vera á lífi. Ég er orðlaus. Ég er bara venjulegur maður og myndi gefa þessu fólki sem bjargaði lífi mínu bæði allt sem ég á og ekki á,“ sagði Sebastian.


Tengdar fréttir

Þakklátur fyrir að hafa lifað af hnífstungu gegnum hjartað

Sebastian var stunginn í gegnum hjartað á Hverfisgötu fyrir rúmri viku. Með ótrúlegum hætti tókst að bjarga lífi hans og bati hans þykir undraverður. Hann lítur á björgunina sem annað tækifæri og ætlar að lifa lífinu með allt öðrum hætti hér eftir.

Arkadiusz Lech kominn í leitirnar

Arkadiusz Lech Ustaszewski sem lögregla lýsti eftir í tengslum við rannsókn á alvarlegri líkamsárás á Hverfisgötu í Reykjavík á sunnudagskvöld er fundinn.

Hnífurinn gekk í hjarta mannsins

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann í gærkvöldi mann, sem hún hafði lýst eftir vegna rannsóknar á lífshættulegu hnífstungumáli, sem kom upp í heimahúsi við Hverfisgötu aðfararnótt sunnudags.

Í lífshættu eftir hnífstungu á Hverfisgötu

Karlmaður liggur nú þungt haldinn og í lífshættu, að sögn lækna, á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hafa orðið fyrir hnífstungu á Hverfisgötu í gærkvöldi. Lögreglan handtók fjóra karlmenn á vettvangi, grunaða um að hafa veitt manninum lífshættulega áverka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×