Nota sprengjur til að draga úr hættu á snjóflóðum 22. nóvember 2014 19:04
Tilraunir með að nota sprengjur til að draga úr hættu á snjóflóðum hér á landi hafa skilað góðum árangri að sögn forstöðumanns Snjóflóðasetursins á Ísafirði. Snjóflóðasetrið á Ísafirði var stofnað árið 2004 og fagnaði tíu ára afmæli í gær. Í upphafi var aðeins einn starfsmaður en nú eru þeir sjö. Setrið hefur meðal annars það hlutverk að vinna að hættumati og rannsóknum á snjóflóðum en þar starfar einnig eini aurskriðusérfræðingur Veðurstofunnar. Á síðustu árum hafa vísindamenn á vegum Snjóflóðasetursins unnið að tilraunaverkefni sem felur í sér að nota sprengjur til að framkalla snjóflóð. Harpa Grímsdóttir forstöðumaður setursins segir að tilraunir hafi skilað góðum árangri. „Við erum að gera tilraunir með að sprengja niður snjóflóð bæði til þess að kanna hvort það sé hægt hérna á Íslandi að nota þessa aðferð til að draga úr hættu á snjóflóðum á ákveðnum svæðum og einnig til þess að rannsaka snjóflóðin þegar þau falla,“ segir Harpa. Hún segir þó ekki hægt að nota þessa aðferð nálægt byggð. „Þetta er víða notað erlendis og sérstaklega á skíðasvæðum og fyrir ofan vegi. Þá er viðkomandi vegi eða skíðasvæði lokað og snjóflóðin sprengd niður. Þegar snjóflóðið er fallið þá er ekki mikil hætta á öðru snjóflóði alveg í bráð,“ segir Harpa.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira