Innlent

Hálka og snjóþekja víða um land

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hálka er víða inn til landsins.
Hálka er víða inn til landsins. Vísir/Vilhelm
Snjóþekja er á Hellisheiði og hálkublettir í Þrengslum. Þá er hálka á Lyngdalsheiði og hálkublettir víða í uppsveitum á Suðurlandi.

Hálka er á flestum leiðum á Vesturlandi, þar með talið á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Hálka og éljagangur eru á Vatnaleið og á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum er hálka á flestum fjallvegum og hálkublettir á láglendi.

Hálkublettir eru á flestum leiðum á Norðvesturlandi. Snjóþekja og snjókoma er á Öxnadalsheiði, Mývatnsheiði og Hólasandi.

Á Austurlandi er hálka eða snjóþekja á fjallvegum en annars hálkublettir víða.

Hálka er víða inn til landsins en aðeins hálkublettir eða alveg greiðfært með ströndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×