Rúnar tekur við liði Lilleström - Bjarni eftirmaður hans hjá KR? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2014 17:29 Rúnar Kristinsson gerði KR að bikarmeisturum í sumar. Vísir/Andri Marinó
Rúnar Kristinsson sem hefur þjálfað lið KR með mjög góðum árangri verður næsti þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Lilleström samkvæmt heimildum íþróttadeildar 365. Fátt getur komið í veg fyrir að Rúnar Kristinsson verði ráðinn þjálfari Lilleström og samkvæmt áreiðanlegum heimildum frá Noregi verður Rúnar næsti þjálfari norska liðsins. Pétur Pétursson sem hefur verið aðstoðarmaður Rúnars hjá KR er sagður fylgja með í kaupunum. Guðjón Guðmundsson fjallaði um framtíð Rúnars í kvöldfréttum Stöðvar 2. Lilleström er á höttunum eftir nýjum þjálfara þar sem að Magnus Haglund, núverandi þjálfari liðsins, hefur tilkynnt að hann sé að hætta með liðið en Haglund er sterklega orðaður við sænska liðið Elfsborg. Norskir fjölmiðlar hafa ekkert fengið staðfest frá Lilleström varðandi ráðningu á nýjum þjálfara en forráðamenn liðsins eru rólegir, væntanlega vegna þess að málið er frágengið. Fleiri félög í Noregi, Svíþjóð og Danmörku hafa borið víurnar í Rúnar, en þar hefur Lilleström vinninginn. Lilleström er í fimmta sæti í norsku úrvalsdeildinni þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir en liðið á enn veika von á því að tryggja sig inn á topp fjögur og þar með þátttökurétt í Evrópukeppninni á næsta ári. KR-ingar munu í þessari viku tilkynna hver muni taka við af Rúnari og verða næsti þjálfari félagsins. Bjarni Guðjónsson, fyrrum fyrirliði liðsins, er þar efstur á blaði.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira