Álasund vill kaupa Aron Elís Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. september 2014 09:41 Aron Elís Þrándarson. vísir/GVA
Pepsi-deildarliði Víkings hefur borist kauptilboð í miðjumanninn efnilega Aron Elís Þrándarson frá norska úrvalsdeildarfélaginu Álasundi, samkvæmt öruggum heimildum Vísis. Aron Elís hefur verið eftirsóttur um nokkurt skeið, ekki síst vegna frammistöðu sinnar í 1. deildinni í fyrra þar sem hann skoraði 14 mörk í 14 leikjum og svo í Pepsi-deildinni í ár þar sem hann bar sóknarleik Víkingsliðsins á herðum sér framan af móti. Þessi tvítugi sóknarsinnaði miðjumaður hefur ekki farið leynt með áhuga sinn á að spreyta sig í atvinnumennskunni og nú gæti svo farið að hann haldi til Noregs eftir tímabilið, en Víkingar eiga í samningaviðræðum við norska félagið. Hann mun þó klára tímabilið með Víkingum, en samkvæmt heimildum Vísis ætlar Fossvogsfélagið ekki að sleppa honum áður en Pepsi-deildin klárast. Víkingar eru í harðri baráttu um sæti í Evrópukeppni að ári. Álasund er sem stendur í 12. sæti norsku úrvalsdeildarinnar, fjórum stigum frá umspilssæti og fimm stigum frá fallsæti. Félagið fagnar 100 ára afmæli sínu í ár, en það hefur verið átta ár samfellt í efstu deild eftir að hafa skoppað upp og niður á milli deilda í nokkur ár þar á undan. Aron Elís á að baki 64 leiki í deild og bikar fyrir Víking og hefur skorað í þeim 26 mörk og þá hefur hann spilað 19 leiki fyrir yngri landslið Íslands. Hann var valinn í hópinn hjá U21 árs landsliðinu á dögunum, en það mætir Armeníu í undankeppni EM 2015 á Fylkisvelli í kvöld.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira