Fótbolti

Fyrsti dagur Luis Suarez á 100 sekúndum | Myndband

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/Getty
Luis Suárez mætti í gær á sína fyrstu æfingu hjá Barcelona eftir að hann gekk í raðir liðsins frá Liverpool í sumar.

Suárez var dæmdur í leikbann og upphaflega bannið var þannig að hann mætti ekki æfa með liðinu né spila. Alþjóða íþróttadómstóllinn breytti þó banninu þannig að hann megi æfa með liðinu.

Það var létt yfir úrugvæska landsliðsmanninum á sinni fyrstu æfingu, en myndband af honum frá sinni fyrstu æfingu má sjá hér að neðan.


El primer día de Luis Suárez, en 100 segundos by fcbarcelona



Fleiri fréttir

Sjá meira


×