Stelpurnar okkar komust í úrslit Kristinn Páll Teitsson skrifar 18. júlí 2014 16:15 Íslenska landsliðið í körfubolta. Mynd/Facebook-síða KKÍ
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta komst rétt í þessu í úrslitin á Evrópukeppni smáþjóða í körfubolta með 85-59 sigri á Skotlandi. Íslenska liðið hefur leiki gríðarlega vel á mótinu og fór nokkuð auðveldlega í gegnum riðlakeppnina þar sem meðal annars vannst 91 stiga sigur á Gíbraltar. Stelpurnar náðu snemma undirtökunum í leiknum og leiddu 22-13 eftir fyrsta leikhluta. Meira jafnræði var í leiknum í öðrum leikhluta en íslenska liðið hafði alltaf undirtökin og fóru liðin inn í hálfleik í stöðunni 40-27. Stelpurnar gerðu hinsvegar út um leikinn í þriðja leikhluta með glæsilegri vörn og skipulögðum sóknarleik. Náðu þær að bæta forskotið um 11 stig í leikhlutanum og var staðan 62-38 eftir þriðja leikhluta. Skosku stelpurnar sóttu aðeins á forskot íslenska liðsins í fjórða leikhluta en ógnuðu aldrei öruggu forskoti og smátt og smátt náðu íslensku stelpurnar betri tökum í leikhlutanum. Fór svo á endanum að íslenska liðið hafði betur 23-21 í leikhlutanum og hafði því betur í öllum fjórum leikhlutum leiksins. Lauk leiknum því með 26 stiga sigri íslenska liðsins, 85-59 og leika þær til úrslita í keppninni. Úrslitaleikurinn fer fram á morgun en íslensku stelpurnar fá að vita mótherjann sinn á eftir þegar seinni undanúrslitaleiknum á milli Möltu og Austurríkis lýkur.Helena Sverrisdóttir, fyrirliði íslenska liðsins lék í dag sinn 50. landsleik fyrir íslenska liðið og fór fyrir liði sínu að vanda. Var hún ansi nálægt þrefaldri tvennu með 16 stig, 8 fráköst og 8 stoðsendingar þrátt fyrir að hafa glímt við meiðsli undanfarna daga.
Körfubolti Mest lesið ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Jökull rekinn frá Stjörnunni Íslenski boltinn Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira