Igor Taskovic fékk bara einn leik í bann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2014 15:00 Árni Vilhjálmsson var blóðugur eftir viðskipti sín við Igor Taskovic. Vísir/Daníel
Igor Taskovic, fyrirliði Víkingsliðsins, er einn af fimm leikmönnum Pepsi-deildar karla sem verða í leikbanni í 10. umferðinni en Aga- og úrskurðarnefnd hefur gefið út vikulegan úrskurð sinn. Igor Taskovic fékk beint rautt spjald fyrir að skalla Blikann Árna Vilhjálmsson í leik liðanna á sunnudagskvöldið. Atvikið sást ekki á sjónvarpsupptökum frá leiknum og dómarinn Garðar Örn Hinriksson sá það ekki heldur. Garðar Örn fékk upplýsingar um það sem gerðist frá öðrum af aðstoðardómurum sínum. Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur nú tekið fyrir rauða spjaldið hjá Igor Taskovic fyrir og hann fær bara einn leik í bann eins og venjan er þegar leikmenn fá sitt fyrsta rauða spjald á tímabilinu. Igor Taskovic tekur bannið út á móti KR á KR-vellinum eftir viku en þá verður liðsfélagi hans Arnþór Ingi Kristinsson einnig í banni eftir að hafa fengið líka rautt spjald í leiknum við Breiðablik. Víkingur fékk tíu þúsund króna sekt vegna tíu refsistiga í þessum Blikaleik. Fylkismaðurinn Oddur Ingi Guðmundsson, Valsmaðurinn James Hurst og Þórsarinn Ármann Pétur Ævarsson eru allir í banni í þessari umferð en þeir hafa allir fengið fjórar áminningar í sumar.Leikmenn úr Pepsi-deildinni í banni í 10. umferð: Oddur Ingi Guðmundsson, Fylki (4 áminningar) James Hurst, Val (4 áminningar) Arnþór Ingi Kristinsson, Víkingi R. (Rautt spjald) Igor Taskovic, Víkingi R. (Rautt spjald) Ármann Pétur Ævarsson, Þór (4 áminningar) Alla úrskurði Aga- og úrskurðarnefndar KSÍ í þessari viku má finna hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Enski boltinn Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslenski boltinn Willum snýr aftur í hollenska boltann Fótbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti „Finnst við þurfa að bæta okkur alls staðar“ Handbolti Fleiri fréttir Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Sjá meira