Svikahrappar þykjast vera starfsmenn Microsoft Randver Kári Randversson skrifar 26. júní 2014 14:52 Heimir Fannar Gunnlaugsson er framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi. Mynd/Microsoft á Íslandi
Borið hefur á því síðustu daga að erlendir svikahrappar hringi í Íslendinga, kynni sig sem starfsmenn Microsoft og tilkynni þeim að það sé vírus í tölvum þeirra. Til að útrýma vírusnum verði fólk að opna ákveðna vefsíðu og hala niður vírusvarnarforriti. Forritið gegnir í raun þveröfugum tilgangi, um er að ræða vírus sem gefur þessum óprúttnu aðilum algert vald yfir tölvunum og geta þeir í kjölfarið valdið fólki fjárhagslegu tjóni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Microsoft á Íslandi. Ekki er vitað fyrir víst í hversu marga hefur verið hringt hér á landi eða hversu margir hafa látið gabbast en á meðal þeirra sem hafa fengið þessi símtöl eru íslenskir starfsmenn Microsoft. Þeir sem hafa orðið fyrir barðinu á svindlurunum ættu að láta þjónustuaðila yfirfara og hreinsa tölvurnar sínar umsvifalaust, jafnvel þótt þær virðist í stakasta lagi. Tilgangur svikahrappanna kann að vera af ýmsum toga: Að fylgjast með hegðun tölvueigendanna og mögulega selja óprúttnum fyrirtækjum upplýsingarnar, stela leyfislyklum að keyptum forritum og síðast en ekki síst komast yfir greiðslukortaupplýsingar og notendanöfn og lykilorð í heimabanka. Þannig geta svindlararnir mögulega valdið fólki stórvægilegu fjárhagslegu tjóni. Eru því miður til fjölmörg dæmi um að fólk hafi glatað háum upphæðum í svindlum á borð við þetta. Auðvelt er fyrir óprúttna einstaklinga að komast yfir símanúmer Íslendinga og hvetur Microsoft fólk til að vera á varðbergi. Fyrirtækið rekur sérstaka skrifstofu í Reykjavík en þar vinna eingöngu Íslendingar og þeir hringja aldrei í fólk nema það hafi sérstaklega óskað eftir því.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Sjá meira