Skera upp herör gegn barnavændi Birta Björnsdóttir skrifar 31. maí 2014 20:00
Undirbúningur fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu er nú í fullum gangi, enda hefst mótið þann 12.júní næstkomandi. Meðal fjölmargra verkefna sem yfirvöld í Brasilíu standa frammi fyrir er að reyna að stemma stigu við aukningu barnavændis þar í landi. Áætlað er að misnotkun á börnum með þessum hætti hafi aukist um 30- 40% á meðan á síðustu heimsmeistaramótum stóð, í Þýskalandi og Suður- Afríku. Í Brasilíu hefur barnavændi verið vandamál lengi, svo mikið vandamál að landið fylgir nú fast á hæla Tælands sem áfangastaður fyrir barnaníðinga, slíkt er framboðið. Talið er að um hálf milljón barna stundi vændi í Brasilíu, allt niður í 11 ára gömul börn. Yfirvöld hafa ráðist í herferð til að minna þá 600 þúsund ferðamenn, sem væntanlegir eru til landsins, á að vændiskaup af einstaklingum undir 18 ára aldri er ólöglegt þar í landi. Þá hafa ráðamenn reynt að lagfæra ímynd sína sem kynlífsparadís undanfarin misseri, og fóru þess meðal annars á leit að íþróttavöruframleiðandinn Adidas tæki úr sölu stuttermaboli sem hannaðir voru fyrir keppnina, þar sem þeir þóttu ýja að því að fáklæddar konur væru hluti af aðdráttarafli heimsmeistaramótsins. Forseti Brasilíu, Dilma Rousseff, sagði alla ferðamenn velkomna til Brasilíu vegna heimsmeistaramótsins, þeir yrðu hinsvegar allir að gera sér grein fyrir því að vændiskaup á börnum yrðu ekki liðin.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira