Ísland ásamt öðrum EFTA-ríkjum í viðræðum um nýtt bankaeftirlit Þorbjörn Þórðarson skrifar 28. maí 2014 22:48
Tillaga er á borðinu um nýja stofnun á vettvangi EFTA-ríkjanna sem myndi sinna sameiginlegu fjármálaeftirliti á Íslandi, Noregi og Liechtenstein og koma í stað sameiginlegs Bankaeftirlits Evrópusambandsins. Er þetta meðal annars gert til að standast skilyrði íslensku stjórnarskrárinnar. Viðræður um málið standa yfir á milli EFTA-ríkjanna og Evrópusambandsins. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, ávarpaði ársfund Fjármálaeftirlitsins í dag. Í ræðu sinni kom hann inn á þann stjórnskipulega vanda sem fylgir sameiginlegu bankaeftirliti Evrópusambandsins sem tekur til starfa í nóvember. Sameiginlegt bankaeftirlit ESB verður fyrst um sinn á vettvangi Evrópska Seðlabankans en síðan sem sjálfstæð stofnun. Talið er að slíkt yfirþjóðlegt fjármálaeftirlit, sem væri sett yfir FME hér á landi, standist ekki stjórnaskrána þar sem slíkt feli í sér yfirþjóðlegt valdframsal sem rúmist ekki innan hennar. Það gangi í raun í berhögg við tvíeðliskenninguna sem EES-samningurinn grundvallast á, um tvíeðli landsréttar og þjóðaréttar. Þetta var mat íslenskra fræðimanna í stjórnskipunarrétti þegar tilskipun um hið sameiginlega fjármálaeftirlit ESB lá fyrir og var greint frá því í burðarfrétt á forsíðu Fréttablaðsins í maí 2012. Bjarni Benediktsson segir að nú sé unnið að lausn á málinu á vettvangi EFTA-ríkjanna, Noregs, Íslands og Liechtenstein, sem rúmast innan íslensku stjórnarskrárinnar. „Málið sjálft snýr að fjármálaeftirliti evrópska fjármálaeftirlitsins og völdum þess til að grípa fram fyrir hendurnar á fjármálaeftirlitum aðildarríkjanna, ef því sýnist svo. Við getum ekki fellt okkur við að færa slíkt vald til stofnunar sem við eigum ekki aðild að. Þess vegna hefur verið lagt til að EFTA-ríkin, þ.e. Ísland, Noregur og Liechtenstein sem eru aðilar að innri markaðnum, spegli þetta fyrirkomulag með stofnun sem þau eiga aðild að innan EES-samningsins,“ segir Bjarni. Þannig yrði þetta í reynd svipað og samkomulagið og löggjöfin um EFTA-dómstólinn. Skúli Magnússon, héraðsdómari sem um fimm ára skeið var ritari EFTA-dómstólsins, vann lögfræðiálit um málið þar sem hann kemst að þeirri niðurstöðu að tillagan rúmist innan íslensku stjórnarskrárinnar. Bjarni Benediktsson segir að Norðmönnum sé umhugað um að verja tvíeðli EES-samningsins. „Við höfum átt samstarf við þá og Liechtenstein um þetta enda skiptir máli að ríkin stilli saman strengi í tillgöugerð.“
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira