Innlent

„Kemur niður á fólki sem er sannarlega veikt."

Birta Björnsdóttir skrifar
Rannsókn lögreglu stendur enn yfir á eldsupptökum bruna sem varð í Iðufelli síðastliðið fimmtudagskvöld. Faðir konunnar sem búsett var í íbúðinni sagði í viðtali við fréttastofu fyrir helgi að sárlega vanti úrræði fyrir geðfatlaða sem einnig glími við áfengis- eða vímuefnafíkn.

Undir þau orð tekur framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Anna Gunnhildur Ólafsdóttir.

„Það eru mjög fáir möguleikar. Þegar fólk er orðið 18 ára hefur það ekki lengur aðgang að Barna- og unglingageðdeildinni og þá eru fá úrræði eftir."

Anna Gunnhildur segir þónokkra hafa haft samband við Geðhjálp eftir brunann í Iðufelli, bæði sjúklinga og aðstandendur.

„Í framhaldi af þessu máli hefur fólk haft samband við okkur út af svipuðum málum. Þá er ég einkum að tala um sem er með þennan tvíþætta vanda, geðveiki og fíknisjúkdóma, og sérstaklega ungt fólk," segir Anna Gunnhildur.

Geðhjálp sendu í dag frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á yfirvöld að tryggja nægilegt fjármagn til að hægt sé að halda úti fullnægjandi geðheilbrigðisþjónustu hér á landi. Það sé brýnt til að koma í veg fyrir að atburðir eins og bruninn í Iðufelli og skotárás í Hraunbænum í desember í fyrra endurtaki sig. Í báðum tilfellum var um að ræða einstaklinga sem glímt höfðu við geðraskanir sem aðstandendur þeirra höfðu margoft reynt að útvega viðeigandi hjálp.

„Við viljum vekja athygli á því að það hefur verið gengið allt of hart fram í niðurskurði í geðheilbrigðisþjónustu og til marks um það má nefna að niðurskurðarkrafan var 17% á Landspítalanum á árunum 2008-2012. Þetta kemur niður á þjónustu og á fólki sem er sannarlega veikt," segir Anna Gunnhildur.


Tengdar fréttir

"Get ekki lengur orða bundist"

Okkur voru allar bjargir bannaðar, segir faðir konu sem búsett var í íbúð í Iðufellinu þar sem upp kom eldur í gærkvöld. Konan hefur lengi glímt við alvarleg veikindi og faðir hennar gagnrýnir úrræðaleysi fyrir aðstandendur geðsjúkra. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú eldsupptök.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×