Innlent

Kristín leiðir sjálfstæðismenn í Snæfellsbæ

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Pjetur
Framboðslisti D listans í Snæfellsbæ fyrir bæjarstjórnarkosningarnar þann 31. maí n.k. var samþykktur samhljóða á fundi í Fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Snæfellsbæ á sumardaginn fyrsta, 24. apríl. Eftirtaldir skipa framboðslistann.



  1. Kristín Björg Árnadóttir verkefnastjóri.

  2. Kristjana Hermannsdóttir skrifstofumaður.

  3. Björn Hilmarsson útibússtjóri.

  4. Rögnvaldur Ólafsson skrifstofumaður.

  5. Júníana Björg Óttarsdóttir verslunarstjóri.

  6. Örvar Már Marteinsson sjómaður.

  7. Brynja Mjöll Ólafsdóttir íþróttakennari.

  8. Þórunn Hilma Svavarsdóttir Poulsen bóndi.

  9. Anton Ragnarsson skipstjóri.

  10. June Beverley Scholtz fiskvinnslukona.

  11. Illugi Jens Jónasson skipstjóri.

  12. Þóra Olsen fiskmatsmaður.

  13. Jón Kristinn Ásmundsson hótelstjóri.

  14. Jón Þór Lúðvíksson bakarameistari.
Í síðustu bæjarstjórnarkosningum hlaut D-listinn fjóra bæjarfulltrúa af sjö og gefa þrír af þeim kost á sér áfram til forystu, þau Kristín Björg Árnadóttir, Kristjana Hermannsdóttir og Rögnvaldur Ólafsson en forseti bæjarstjórnar síðustu fjögur ár Jón Þór Lúðvíksson tekur heiðurssæti listans.

Bæjarstjóraefni D-listans er Kristinn Jónasson núverandi bæjarstjóri í Snæfellsbæ, en Kristinn hefur verið bæjarstjóri þar síðan árið 1998 eða í 16 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×