Viðgerð á vegi fjórfalt dýrari Svavar Hávarðsson skrifar 11. apríl 2014 13:33 Vegamálastjóri telur 2–3 milljarða vanta til viðbótar á hverju ári til viðhaldsverkefna. Fréttablaðið/Pjetur
Ráðast hefði þurft í viðhald á rúmlega tvö þúsund kílómetrum af vegum með bundnu slitlagi í fyrra umfram það sem var gert. Með sömu eða lítt breyttum fjárveitingum til Vegagerðarinnar vegna viðhaldsverkefna mun þetta eiga við um rúmlega þrjú þúsund kílómetra árið 2017. Þetta sýnir rannsókn sem tveir sérfræðingar Vegagerðarinnar gerðu á ástandi vega með bundnu slitlagi í fyrra. Jón Magnússon, deildarstjóri hjá Vegagerðinni, segir að niðurstaða sín og kollega síns, Einars Gíslasonar, sé að viðhald vega sé arðbærasta fjárfestingin í samgöngumálum sem finnst, og að niðurskurður á viðhaldi kalli óumflýjanlega á auknar fjárveitingar síðar meir. Jón segir að nýlegt dæmi sýni þetta svart á hvítu. Viðgerð á veginum yfir Þverárfjall hafi orðið um fjórfalt dýrari en ef fjármagn hefði verið til staðar til eðlilegs viðhalds á sama stað í gegnum árin. Nú eru um 5.300 kílómetrar af tæplega 13.000 kílómetra vegakerfi með bundið slitlag. „Niðurstöðurnar leiða í ljós, að þrátt fyrir fulla nýtingu viðhaldsfjármagns á yfirstandandi ári, munu 2.058 kílómetrar af vegum með bundnu slitlagi ekki standast lágmarkskröfur Vegagerðarinnar í árslok 2013. Sé litið til næstu ára miðað við óbreytt fjármagn, er ljóst að þróunin er uggvænleg og í árslok 2017 er heildarlengd þessara vega sem ekki uppfylla lágmarkskröfur orðin alls 3.064 kílómetrar. Með öðrum orðum er fyrirsjáanlegt að 58% af vegakerfi landsins með bundnu slitlagi árið 2017 er undir þeim mörkum, að þeim verði haldið við með eðlilegum hætti til framtíðar. Af þessu má vera ljóst að niðurskurður í viðhaldi á vegum mun alltaf leiða til verulega aukins kostnaðar til lengri tíma litið,“ segir í samantekt þeirra Jóns og Einars. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri sagði í viðtali við Fréttablaðið í gær að Vegagerðin þyrfti tvo til þrjá milljarða til viðbótar í heildarframlög til viðhaldsverkefna ef halda ætti í horfinu. Fimm milljarðar eru veittir til þessara verkefna í ár. Hreinn sagði jafnframt að nú sæi jafnvel til sólar hvað þennan lið fjárveitinga varðar og vonaði að botninum væri náð. Samkvæmt tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2013–2016, sem nú er til meðferðar hjá umhverfis- og samgöngunefnd, er erfitt að finna því stað að fjárveitingar verði auknar svo verulegu máli skipti. Heildarfjárveiting til viðhalds milli ára er óbreytt; fimm milljarðar á þessu ári sem hækkar í 5,450 milljarða 2015 og í 5,500 milljarða 2016. Um 40% af fjárveitingum til viðhalds hafa runnið til viðhalds vega með bundið slitlag, er skilningur Fréttablaðsins.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira