Þingstörf fara alltaf í sama farið Heimir Már Pétursson skrifar 13. apríl 2014 12:06 Ragnheiður segir hljóta að fara að líða að afgreiðslu stærstu mála. Vísir/GVA
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir hljóta að fara að líða að því að samið verði um afgreiðslu stærstu mála fyrir þinglok, þeirra á meðal þingsályktunartillögu um slit aðildarviðræðna að Evrópusambandinu. Sextíu og eitt stjórnarfrumvarp á ólíkum stigum bíða afgreiðslu en aðeins átta þingfundadagar eru eftir fram að sumarleyfi þingmanna. Sautján stjórnarfrumvörp bíða fyrstu umræðu á Alþingi, þeirra á meðal frumvarp um Seðlabanka Íslands vegna eiginfjárviðmiða og ráðstöfun hagnaðar bankans, sem gengur út á að spara ríkissjóði um 10 milljarða í vaxtagreiðslur til bankans. Tuttugu og níu mál eru í nefnd, þeirra stærst skuldaniðurfellingarfrumvörp ríkisstjórnarinnar sem höfuðáhersla er lögð á að klára fyrir þinglok. En einnig frumvarp fjármálaráðherra sem felur í sér lækkanir á alls kyns gjöldum, eins og eldsneytisgjöldum sem eru hluti ráðstafana stjórnvalda vegna síðustu kjarasamninga. Þá bíða 15 stjórnarfrumvörp annarrar umræðu. Samtals eru þetta 61 stjórnarfrumvörp, sem Ragnheiður Ríkharðsdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir að séu í hlutarins eðli mis stór.Gefur ekki augaleið að menn þurfa að fara að forgangsraða?„Jú, ég held að það hljóti nú að vera,“ segir Ragnheiður. „Svo eru ýmis þingmannamál sem samið var um fyrir jól að ættu að ná fram að ganga. Kannski ekki ákveðin þingmannamál en að þingmannamál ættu að ná fram að ganga samhliða. Þannig að jú, ég held að það hljóti að verða svo að menn þurfi að semja og forgangsraða.“ Meðal annars sé um að ræða frumvörp sem háð séu dagsetningum og þurfi því að ganga í gegn , eins og skuldaniðurfellingarfrumvörpin, og svo er umdeild þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um slit á Evrópusambands viðræðunum enn í utanríkismálanefnd. „Það er alveg ljóst að bæði frumvörpin sem varða skuldaleiðréttinguna og séreignarsparnaðinn að þau verða að ná fram. Þau eru háð dagsetningunni 15. maí. Það þarf að ljúka þeim á einn eða annan hátt og síðan er auðvitað þessi þingsályktunartillaga sem liggur inn í utanríkismálanefnd. Ég held að menn muni semja um hana með einum eða öðrum hætti, þótt ég viti ekki, en mér finnst umræðan hafa verið í þá veru að menn hljóti að gera það,“ segir Ragnheiður. Það er ekki nýtt að þingmenn komist í tímaþröng og samið sé á síðustu stundu um afgreiðslu mála. Ragnheiður segir stjórnarandstöðuna vissulega hafa visst vald um afgreiðslu mála undir lok hvers þings. „Þá er þetta unnið í skorpum sem er í sjálfu sér ekki gott,“ segir hún. Enda bjóði slík vinnubrögð upp á mistök við setningu laga. „Já og hefur marg oft komið í ljós að menn þurfa svo að fínpússa eftir að frumvarp er orðið að lögum, þá kemur í ljós að orðalag eða dagsetningar og ýmislegt hefur farið fram hjá mönnum í hita og þunga leiksins, ef svo mætti að orði komast og hefur þurft að lagfæra þegar komið er saman á ný. Þetta eru ekki þau vinnubrögð sem lagt er upp með hverju sinni en einhverra hluta vegna förum við alltaf í sama farið.“
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Sjá meira