Vilja aðskilnað ríkis og kirkju og algert trúfrelsi á Íslandi Samúel Karl Ólason skrifar 14. apríl 2014 14:54
Ungir jafnaðarmenn telja það mikla tímaskekkju á 21. öldinni að eitt trúfélag hafi lögformlega æðri stöðu í samfélaginu umfram önnur. Stefna þeirra er að ríki og kirkja eigi að vera aðskilin. UJ sendu í dag frá sér tilkynningu vegna ummæla Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylkingarinnar, í þættinum Mín skoðun í gær. „Ég er mikill talsmaður þjóðkirkjunnar. Ég held það hafi skilað þjóðinni miklu að hafa þetta samband kirkju og kristni í gegnum aldirnar. Ég held að það þurfi að viðurkenna að þjóðkirkjan er sérstök stofnun og að það eru sérstök rök sem mæla með þessari samfylgd kirkju og ríkis. Hún er sjálfstæð og það þarf að tryggja að kirkja sé sjálfstæð um eigin ákvarðanir,“ sagði Árni Páll. Þeir skora á Samfylkinguna að samþykkja ályktun um aðskilnað ríkis og kirkja á næsta landsfundi flokksins. „Okkar skoðun er að mikið af þeirri grunþjónustu sem allir þurfa að sækja og mjög margir sækja hjá þjóðkirkjunni, eigi í grunninn að vera á höndum ríkisins. Fólk sem kjósi þó að sækja þessa þjónustu hjá frjálsum félagasamtökum sem eru trúfélög, þau geti auðvitað gert það,“ segir Stefán Rafn Sigurbjörnsson, formaður UJ, í samtali við Vísi. Að skapa samfélag þar sem stjórnarskrá Íslands hygli ekki einu trúfélagi framar öðru er markmið og stefna UJ. „Við viljum fullan aðskilnað ríkis og kirkju og að fulls jafnréttis sé gætt gagnvart öllum trúarskoðunum og trúfélögum á landinu,“ segir Stefán. UJ vilja að Samfylkingin sýni að hann sé flokkur jafnréttis þegar komi að trúmálum og telja að raunverulegu jafnrétti í trúmálum verði ekki komið á fyrr en ríki og kirkja hafa verið aðskilin að fullu. „Við erum alltaf að verða opnaðra fjölmenningarsamfélag og þessi kristna arfleifð sem við byggjum á, er eitthvað sem á kannski síður við í dag. Það er 21. aldar stefnumál nútíma stjórnarflokks að taka upp algjört trúfrelsi á landinu og aðskilnað ríkis og kirkju,“ segir Stefán. Ályktun Ungra jafnaðarmanna í heild sinni má sjá hér að neðan.Ungir jafnaðarmenn vilja í ljósi ummæla Árna Páls Árnasonar um samfylgd ríkis og kirkju, í þættinum ,,Mín skoðun” þann 13.apríl, vekja sérstaka athygli á að stefna Ungra jafnaðarmanna í þeim efnum er að ríki og kirkja eigi að vera aðskilin.Ungir jafnaðarmenn telja það vera mikla tímaskekkju á 21.öldinni að eitt trúfélag hafi lögformlega æðri stöðu í samfélaginu umfram önnur. Það er stefna og markmið Ungra jafnaðarmanna að skapa samfélag þar sem stjórnarskrá okkar hyglir ekki einu trúfélagi framar öðru.Skora Ungir jafnaðarmenn á Samfylkinguna að samþykkja ályktun um aðskilnað ríkis og kirkju á næsta landsfundi sínum. Hefja þarf þá vegferð að færa þá mikilvægu grunnþjónustu sem Þjóðkirkjan veitir úr höndum trúfélags og til ríkisins að fullu. Vilja Ungir jafnaðarmenn að flokkurinn sýni að hann sé flokkur jafnréttis þegar kemur að trúmálum.Telja Ungir jafnaðarmenn að raunverulegu jafnrétti í trúmálum verði ekki komið á fyrr en ríki og kirkja hafa verið að fullu aðskilin.Ísland hefur á síðustu áratugum orðið meira og meira fjölmenningarsamfélag þar sem fólk af öllum menningarheimum og trúarbrögðum kemur saman og það að hafa þjóðkirkju er ekki í takt við þær samfélagsbreytingar.
Mest lesið Barn strauk af leikskóla í Hafnarfirði Innlent Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Erlent Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Innlent Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Innlent Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Innlent Fékk dánaraðstoð í gær eftir harða baráttu við föður sinn Erlent Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Erlent Lægðin heldur áfram að angra landsmenn Veður Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Erlent Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun Innlent Fleiri fréttir Barn strauk af leikskóla í Hafnarfirði Norðurevrópskir bandamenn funda á Íslandi á næsta ári Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun „Sem betur fer er okkar maður ekki illa meiddur“ Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Snör handtök skiptu sköpum á Höfðatorgi Sjö vilja stýra Sjúkrahúsinu á Akureyri Árekstur í Borgarfirði 2025: Hálka ein meginorsaka banaslyss Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Bein útsending: Daði Már kynnir fjármálaáætlunina Forseti Slóveníu mætir á afmælisdegi Vigdísar Líf leiðir Sjálfstæðisflokk áfram á Akranesi Stúlkan er fundin Opna nýja möguleika í að binda kolefni með aðferð Carbfix Neita að afhenda dóma lögreglumanna Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Málþing um konur sem lifa við langvinn veikindi Telja að bílastæðum fækki eftir að þau voru færð úr uppdráttum Þakklátur að flestir fylgdu tilmælunum Geta ekki siglt Herjólfi að höfninni vegna óveðursins Barnlaus leikskóli Menningarhúsið fer ekki í íbúakosningu Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Strætó hættir akstri í dag Ráðin framkvæmdastjóri Rauða krossins Sjónvarpsfréttir Sýnar vegna óveðursins Vetrarþjónusta í gangi og fer á fullt um hádegi Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Sjá meira