Klukkutími með konungi Svía Samúel Karl Ólason skrifar 15. apríl 2014 09:51 Guðrún tekur við verðlaununum af Karli Gústafi, Svíakonungi. Mynd/Aðsend „
Ég lít á þetta sem viðurkenningu fyrir mín störf og líka fyrir landfræðirannsóknir og rannsóknir samstarfsaðila minna, doktor og meistaranema og Háskóla Íslands,“ segir Guðrún Gísladóttir, sem í gær fékk Wahlberg gullverðlaun, sænska mann- og landfræðifélagsins. Guðrún er prófessor í landfræði við Líf og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands. Verðlaunin hlaut hú fyrir vísindaframlag sitt á sviði landfræðin. Guðrún tók við viðurkenningunni af Karl Gústaf konungi Svía við hátíðlega athöfn í sænsku konungshöllinni í gær. Karl Gústaf er verndari verðlaunanna. „Athöfnin tók um klukkutíma og konungurinn var þarna með okkur og spjallaði við okkur. Það var afskaplega ánægjulegt,“ segir Guðrún. „Þetta vekur athygli á rannsóknum í landfræði og rannsóknum sem gerðar eru á Íslandi. Þetta hefur mikla þýðingu fyrir minn rannsóknarhóp sem og Háskóla Íslands. Þetta sýnir einnig fram á að við séum í alþjóðlegu samstarfi og vinnum með mismunandi hópum.“ „Það er ánægjulegt þegar sést út fyrir landsteinana að það sem við erum að gera er einhvers virði,“ segir Guðrún. Rannsóknir Guðrúnar hafa meðal annars snúið að náttúrulandfræði, gróður- og jarðvegseyðingu, sjálfbærri nýtingu lands og náttúruvá. Þá hefur Guðrún á síðustu árum meðal annars sinnt rannsóknum á bindingu kolefnis í jarðvegi en slíkar rannsóknir eru mjög þýðingarmiklar, ekki síst nú á tímum loftslagsbreytinga. Eins dags ráðstefna verður haldin í Stokkhólmi í nóvember sem tileinkuð verði Guðrúnu og hennar rannsóknum. „Þá mun ég vera með erindi og fyrirlesurum verður sérstaklega boðið til að vera með erindi. Það verður mjög ánægjulegt og mun fara fram í Stokkhólmi,“ segir Guðrún. Í tilkynningu segir að sænska mann- og landfræðifélagið, sem sé afar virt, hafi verið stofnað árið 1878 til að stuðla að rannsóknum í mannfræði og landfræði. Félagið úthlutar meðal annars styrkjum til vísindamanna, hefur út tímarit, skipuleggur málþing og ráðstefnur og fleira. Í rökstuðningi stjórnar félagsins segir að Guðrún hljóti verðlaunin fyrir vísindaframlag til landfræði, ekki síst þekkingu hennar og rannsóknir á gróður- og jarðvegseyðingu og fyrir að stuðla að auknu samstarfi landfræðinga á alþjóðavettvangi. Verðlaunin sem Guðrún hlaut eru kennd við Johan August Wahlberg, þekktan sænskan náttúruvísindamann og landkönnuð sem uppi var á fyrri hluta 19. aldar.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira