Efna til atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun Samúel Karl Ólason skrifar 16. apríl 2014 11:02 Frá fundinum í gær. Mynd/Aðsend
Fjölmennur baráttufundur félagsmanna SFR stéttarfélags og Sjúkraliðafélags Íslands sem starfa hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) var haldinn síðdegis í gær. Á fundinum voru kjör og réttindi félagsmanna til umræðu og staðan í kjaraviðræðum félaganna við SFV. Í tilkynningu frá samtökunum segir að húsfyllir hafi verið á Grettisgötunni þar sem fundurinn var haldinn og stóð fólk meðfram göngum út á götu. Þá segir einnig að mikill hiti hafi verið í fundarfólk. Því flestir séu orðnir afar langeygðir eftir kjarabótum fyrir þennan hóp sem telur um fimm hundruð manns. Einróma sameiginleg ákvörðun var tekin á fundinum um að félögin efni til atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun. „Enda hafa viðsemjendur ekki sýnt neinn vilja til þess að koma til móts við kröfu félaganna og mikil óánægja er með gang mála,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að félögin hafi verið í samstarfi um kjarasamningsviðræðurnar undanfarið en lögð hefur verið áhersla á að bæta kjör starfsmannanna meðal annars með því að ná fram sambærilegu jafnlaunaátaki og ríkisstjórnin stóð fyrir vegna hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum. „Starfsfólk á hjúkrunarheimilunum naut ekki góðs af því átaki á sínum tíma og því hefur sú krafa verið sett í forgang í þessum samningum sem fyrsta skref í leiðréttingum launa og kjara. Þá hefur einnig vantað kafla um réttindi og skyldur inn í kjarasamningana við SFV, en Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu hafa alfarið neitað að semja um réttindi og skyldur starfsmanna. Félögin eru einhuga um að slíkur rammi sé nauðsynlegur og forsenda þess að hægt sé að byggja upp gott starfsumhverfi.“ Félögin munu leita eftir umboði félagsmanna til verkfallsaðgerða ef samningaviðræður skili ekki áþreifanlegum árangri á næstu dögum. Þau fyrirtæki sem tilheyra Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) eru: Ás, Dalbær, Eir, Garðvangur, Grund, Hlévangur, HNLFÍ, Hornbrekka, Hrafnista Reykjavík, Hrafnista Hafnarfirði, Hrafnista Kópavogi, Hrafnista Reykjanesi, Kumbaravogur, Lundur, Mörk, SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilið, Skjól, Skógarbær, Sóltún og Sunnuhlíð/Vigdísarholti.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira