Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðganir Samúel Karl Ólason skrifar 16. apríl 2014 14:58 Vísir/Pjetur
Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi á dögunum mann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Maðurinn var ákærður fyrir tvær nauðganir, annars vegar í október 2012 og hins vegar desember 2012, auk þess var hann kærður fyrir að þvinga konu til munnmaka. Einnig er hann kærður fyrir að hafa þröngvað fingrum í leggöng og endaþarm konunnar. Maðurinn og konan áttu í sambandi þegar atvikin þrjú áttu sér stað. Þau stunduðu samfarir þar sem hann beitti hana valdi með samþykki beggja, einkum með flengingum en einnig með því að hann hafi yfirbugað hana líkamlega og síðan haft samfarir við hana, eins og segir í dómnum. Maðurinn hélt því fram að samfarirnar hefðu ekki verið knúnar áfram með ólögmætri nauðung af hans hálfu. Þær hafi verið á sömu nótum og aðrar sadó-masókískar samfarir sem þau hafi stundað. Hún hefði haft tögl og haldir í sambandi þeirra og sýnt stöðugan áhuga á frekara kynlífi meira að segja eftir meint kynferðisbrot. Dómurinn taldi sannað að maðurinn hefði haft samfarir við konuna og beitt til þess valdi gegn vilja hennar. Þau hafi verið hætt saman og hún neitað honum um samfarir. Það hafi hann ekki samþykkt. „Með tilliti til þess að brotaþoli hafði daginn áður slitið sambandi þeirra og telja verður sannað að hún greini rétt frá því að hún hafi sagt að hann væri ekki að fara að fá að ,,ríða núna“, þykir hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærða hafi ekki getað dulist á verknaðarstundinni að samfarirnar væru ekki með samþykki brotaþola að þessu sinni,“ segir í dómnum. Konan kærði manninn einnig fyrir að hafa þvingað sig til munnmaka og nauðgað sér þann 15. desember 2012 í heimahúsi hans. Það kvöld sendi faðir mannsins, sem staddur var í sama húsi, syni sínum skilaboð og spurði son sinn hvort hann væri að kæfa konuna. Benti hann syni sínum á að konan hefði beðið hann um að hætta. Þá sagðist hann einnig ætla að kalla til lögreglu. Maðurinn var sakfelldur fyrir tvær nauðganir en sýknaður af ákæru um þvingun til munnmaka. Þá var hann sakfelldur fyrir að þröngva fingrum í leggöng og endaþarm konunnar. Hann var dæmdur í fangelsi í tvö og hálft ár og til þess að greiða konunni 1,2 milljónir króna í miskabætur og 1,8 milljónir í sakarkostnað.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira