„Við getum ekki sætt okkur við þetta“ Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 16. apríl 2014 19:15
Forystumenn ASÍ telja að forsendur kjarasamninganna, sem undirritaðir voru í desember, séu brostnar útaf launahækkunum framhaldsskólakennara og félaga í BHM. Formaður Eflingar segir að almenningur í landinu eigi að vera jafnt settur varðandi það sem er til skiptana. Framhaldsskólakennarar skrifuðu undir nýja kjarasamninga á dögunum, og tíu af ellefu aðildarfélögum BHM skrifuðu undir saminga við Reykjavíkurborg í nótt. Samningar þessir fela í sér mun meiri launahækkanir en um var samið á hinum almenna vinnumarkaði í lok síðasta árs. Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að forystumenn innan ASÍ telji að þetta gangi þvert á forsendur þeirra kjarasamninga sem voru undirritaðir í desember. Þar var gert ráð fyrir hóflegum launahækkunum til að draga úr verðbólgu og auka kaupmátt. Sigurður Bessason, formaður stéttafélagsins Eflingar, segir greinilegt að ríki og sveitarfélög hafi tekið upp nýja launastefnu. „Eftir að við skrifuðum undir okkar samninga er greinilegt að viðsemjendur okkar hafa tekið upp önnur vinnubrögð og aðrar nálganir varðandi hvað er til skiptana í samfélaginu,“ segir hann. Launahækkanir á almennum markaði voru 2,8%. Framhaldsskólakennarar fá aftur á móti tæplega 16% launahækkun á næstu tólf mánuðum. Samningar Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins eru til eins árs en til stendur að semja til lengri tíma í haust. Sigurður segir að í þeim viðræðum verði farið í hart „Við getum ekki sætt okkur við þessar prósentutölur. Það kann hinsvegar að verða til þess að það jafnvægi sem menn vilja stefna að í samfélaginu fari einfaldlega út um gluggann,“ segir Sigurður.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Sjá meira