„Menn með augljósum og óábyrgum hætti að misnota fjölmiðla og réttarkerfið“ Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 2. apríl 2014 07:00 Gunnar segir stjórn Krossins sitja án umboðs og hafa verið kosna á ólöglegum fundi. vísir/anton
Gunnar Þorsteinsson, fyrrverandi forstöðumaður Krossins, segir herferð standa yfir gegn sér í aðdraganda aðalfundar safnaðarins. Í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag segir Gunnar að sér þyki merkilegt „hversu aðgengi þeirra sem ata aðra auri er greitt að ríkisfjölmiðlum“. „Nú nýverið var ég borinn þungum sökum í Kastljósþætti Sjónvarpsins, þar sem fréttamaður fer með getsakir á hendur mér í löngu máli, þar sem hann fjallar um kröfu stjórnar Krossgatna um rannsókn á meintri vafasamri meðferð fjármuna Krossgatna,“ skrifar Gunnar í grein sinni, og bætir því við að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem Kastljós fari í slíka vegferð gegn sér. „Fyrir rúmum þremur árum gerði Kastljós slíkt hið sama, er það flutti mál kvenna sem fóru með fáránlegar ásakanir á hendur mér sem saksóknari vísaði síðan frá. Þar fóru Kastljósmenn rangt með og brutu á mér rétt.“ Gunnar segir fréttamann hafa látið þess getið að hann hafi sætt ákæru, reyndar af allt öðrum toga, og telji það upplýsandi fyrir fréttina. „Og gerir síðan samanburð sem er fáránlegur. En fréttamaðurinn gætir ekki jafnræðis og upplýsir ekki að ákærandi minn, Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður, hefur sætt kæru vegna þjófnaðar, fjárdráttar, fölsunar ársreikninga og fyrir að villa á sér heimildir.“ Hann segir stjórn Krossins sitja án umboðs og hafa verið kosna á ólöglegum fundi þar sem fjölmargar réttarreglur hafi verið brotnar. „Nú er komið að aðalfundi samkvæmt samþykktum safnaðarins og ljóst er að þeir sem sitja fyrir á fleti bera mikinn kvíðboga fyrir þeim fundi og reyna með öllum tiltækum ráðum að halda sínu.“ Gunnar segir tímasetningu beiðninnar um rannsókn segja eiginlega allt sem segja þurfi. „Menn hafa gripið til þeirra óyndisúrræða að sverta mig sem þeir mega og vega að mér með þeim hætti að mér verði ekki stætt á því að halda minni baráttu áfram fyrir breytingum í stjórn Krossins. Hér eru menn með augljósum og óábyrgum hætti að misnota fjölmiðla og réttarkerfið til að ná fram annarlegum markmiðum.“
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira