Stöðvuðu meintar eftirlíkingar af Nike-skóm Stefán Árni Pálsson skrifar 3. apríl 2014 10:21 myndir/tollstjórinn
Tollverðir stöðvuðu nýlega fjórar sendingar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem innihéldu meintar eftirlíkingar af Nike-skóm en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Tollinum. Um var að ræða hraðsendingar sem komu frá Kína en það var einstaklingur sem stóð að innflutningnum. Sendingarnar voru stöðvaðar samkvæmt heimild í tollalögum vegna gruns um að þær innihéldu falsaðar vörur og var rétthafa Nike-merkisins tilkynnt um málið í kjölfarið. Rétthafi hefur kært málið til lögreglunnar á Suðurnesjum sem annast rannsókn þess. Embætti tollstjóra tekur nú þátt í alþjóðlegu verkefni sem beinist gegn vörufölsun og tengslum við fjölþjóðlega skipulagða glæpastarfsemi. Verkefnið ber yfirskriftina: „Falsanir: ekki kaupa hlut í skipulagðri glæpastarfsemi“ og er á vegum fíkniefna- og afbrotamálaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Fram kemur í tilkynningu frá Tollinum að falsaður varningur sé oft og tíðum framleiddur við ófullnægjandi aðstæður af ólöglegu vinnuafli sem ekki fær greidd mannsæmandi laun. Það er gríðarlega mikilvægur liður í baráttunni gegn vörufölsun að fólk sé meðvitað um þær afleiðingar sem þessi iðnaður hefur í för með sér því að þá eru minni líkur á að almenningur kaupi slíkar vörur og styrki þannig skipulagða glæpastarfsemi. Þá getur falsaður varningur verið hættulegur enda ekki framleiddur í samræmi við viðeigandi staðla og kröfur.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira