Aðalheiður mælir með samningnum Heimir Már Pétursson skrifar 4. apríl 2014 13:53 Formaður samninganefndar Félags framhaldsskólakennara segir að árangur hafi náðst í því markmiði að ná fram allt að 17 prósenta launahækkun. Samningur gildir til haustsins 2016.
Framhaldsskólakennarar og samninganefnd ríkisins undirrita kjarasamning sem gildir í tvö og hálft ár hjá ríkissáttasemjara síðar í dag. Kennarar fóru fram á 17 prósent launaleiðréttingu og segist formaður samninganefndar félagsins vel geta mælt með samnngnum við kennara. Verkfall framhaldsskólakennara hófst hinn 17. febrúar eftir árangurslausar samningaviðræður í á þriðja mánuð. Framhaldsskólanemar hafa því misst þrjár dýrmætar vikur úr kennslu, en það á eftir að koma í ljós hvort ótti manna um mikið brottfall nemenda verður að ræða vegna verkfallsins mun rætast. Aðalheiður Steingrímsdóttir formaður samninganefndar Félags framhaldsskólakennara segir útlit fyrir að skrifað verði undir nýjan kjarasamning seinnipartinn í dag.Er þetta samningur sem þú treystir þér vel til að mæla með við þitt fólk?„Já, ég treysti mér algerlega til þess. Þetta er samningstími upp á tvö og hálft ár. Fram til haustsins 2016,“ segir Aðalheiður. En kennarar lögðu fram með þá kröfu að fá 17 prósent hækkun á launum. „Okkar markmið var að ná fram umbótum á launum og slakri launaþróun í framhaldsskólum, og já við náðum árangri varðandi þetta markmið,“ segir Aðalheiður og fæst ekki til að upplýsa frekar um niðurstöðuna varðandi launaliðinn, enda eigi eftir að kynna samningana endanlega fyrir umbjóðendum hennar. En það hefur kostað sitt að ná þessum samningum fram og Aðalheiður segir að vissulega hefði verið betra ef eiginlega samningaviðræður hefðu hafist fyrr. „En, það er bara gott að við náðum að lokum saman um málin. Þannig að verkfall þarf ekki að verða lengra en orðið er“ segir hún. En nemendur hafa misst þrjár dýrmætar vikur úr kennslu og þeim verði bætt það upp. „Það er alltaf hluti af lokafrágangi að ræða um hvernig hægt er að bæta nemendum upp tímann og það er líka núna í þetta skiptið en ég get ekkert sagt um það hvernig það verður gert . Það kemur bara í ljós,“ segir Aðalheiður Steingrímsdóttir, en að öllu óbreyttu hefst kennsla í framhaldsskólum landsins á mánudag.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira